Sala fasteigna – góð ráð
Hér mun verða greint frá því helsta sem seljendur fasteigna þurfa að hafa í huga þegar þeir hafa tekið ákvörðun að selja fasteign sína. Þar er að ýmsu að hyggja þannig að allt fari vel og mikilvægt að kaupendur leiti hjá fasteignasala sínum svara við öllu því sem þá vantar upplýsingar um eða
þurfa að fræðast um í söluferlinu. Sé þess gætt eru mun meiri líkur að fasteignaviðskiptin gangi snuðrulaust fyrir sig og án nokkurrr vandkvæða. Mundu þá gullvægu reglu að upplýsa kaupanda og fasteignasala um allt það sem þú veist eða mátt vita að kaupandi þarfnist vitneskju um !



