D ó M U R
1. apríl, Héraðsdómur Reykjavíkur í máli nr.4860/2007
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
gegn
Páli Skúlasyni
Elísabetu H. Guðmundsdóttur og
Núll sjö ehf.
kveðinn upp svohljóðandi
Mál þetta höfðaði Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir, Bræðraborgarstíg 13, Reykjavík, með stefnu birtri 22. júní 2007 á hendur Páli Skúlasyni, Prestastíg 9, Reykjavík. Með sakaukastefnu útgefinni 9. október 2007 var einnig stefnt til að þola dóm Elísabetu H. Guðmundsdóttur, Ekrusmára 7, Kópavogi, og Núll sjö ehf., Strandvegi 12, Garðabæ. Málið var dómtekið að lokinni aðalmeðferð 6. mars sl.
Stefnandi krefst þess að viðurkenndur verði eignarréttur hennar að sumarbústaðalóðinni nr. 93 í landi Hests í Grímsnesi, fastanúmer 168-599 í landsskrá Fasteignamats ríkisins. Þá krefst stefnandi málskostnaðar óskipt úr hendi stefndu.
Allur dómurinn hér
__________________________________________________________________
D ó m u r
Ár 2008, þriðjudaginn 1 apríl, er í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli nr.E-3893/2007
Margrét I. Gunnarsdóttir og
Sævar Stefánsson
gegn
EK Sumarhúsum ehf.,
Einari Þorkelssyni og til réttargæslu
Verði Íslandstryggingu hf.
Mál þetta höfðuðu Margrét I. Gunnarsdóttir og Sævar Stefánsson, bæði til heimilis að Hjallabraut 76, Hafnarfirði, með stefnu birtri 25. maí 2007 á hendur EK Sumarhúsum ehf., Stórateigi 38, Mosfellsbæ, og Einari Þorkelssyni, til heimilis á sama stað. Þá er stefnt til réttargæslu Verði Íslandstryggingu hf., Sætúni 8, Reykjavík. Málið var dómtekið að lokinni aðalmeðferð 5. mars sl.
Stefnendur krefjast þess að stefndu EK Sumarhúsum og Einari Þorkelssyni verði gert að greiða óskipt 2.370.637 krónur með dráttarvöxtum skv 6. gr. laga nr 38/2001 frá 29. júní 2006 til greiðsludags. Þá krefjast þau málskostnaðar óskipt úr hendi stefndu.
Stefndi EK sumarhús krefst aðallega sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar. Til vara krefst hann þess að stefnukröfur verði lækkaðar og að málskostnaður falli niður.
Stefndi Einar Þorkelsson krefst sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar.
Réttargæslustefndi gerir ekki kröfur.
Allur dómurinn hér
_________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 15. apríl 2008 í máli nr. E-5974/2006:
Anna Rós Ananphiboon
(Erlendur Þór Gunnarsson hdl.)
gegn
Burin Janyalert
(Hildur Sólveig Pétursdóttir hdl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 20. febrúar sl., er höfðað 11. október 2006.
Stefnandi er Anna Rós Ananphiboon, Hraunbæ 72, Reykjavík.
Stefndi er Burin Janyalert, Unufelli 33, 111 Reykjavík.
Dómkröfur stefnanda eru þær aðallega að staðfest verði með dómi kaup stefnanda á fasteigninni Hraunbær 72, 204-4757, Reykjavík þann 20. júní 2003 af stefnda á 6.000.000 króna og að stefnandi sé réttur og löglegur eigandi fasteignarinnar, gegn fullri greiðslu kaupverðs samkvæmt samþykktu kauptilboði með yfirtöku áhvílandi veðskuldabréfa við íbúðalánasjóð að fjárhæð 5.453.998 krónur, auk peningagreiðslu að fjárhæð 546.002 krónur.
Til vara krefst stefnandi þess að staðfest verði með dómi kaup stefnanda á fasteigninni Hraunbær 72, 204-4757, Reykjavík þann 20. júní 2003 af stefnda á 6.000.000 króna og að stefnandi sé réttur og löglegur eigandi fasteignarinnar, gegn fullri greiðslu kaupverðs samkvæmt samþykktu kauptilboði með yfirtöku áhvílandi veðskuldabréfa við íbúðalánasjóð að fjárhæð 5.453.998 krónur, auk peningagreiðslu að fjárhæð 546.002 krónur með vöxtum frá 20. júní 2003 til greiðsludags að mati dómsins.
Einnig er krafist málskostnaðar að viðbættum virðisaukaskatti að mati réttarins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi.
Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi auk virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Allur dómurinn hér
_________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 22. apríl 2008 í máli nr. E-5132/2007:
Benedikt Ólafsson
(Eva Bryndís Helgadóttir hdl.)
gegn
Hafsteini Ingimundarsyni og
Önnu Kristínu Þorsteinsdóttur
(Guðbjarni Eggertsson hdl.)
Mál þetta sem dómtekið var 12. mars sl. er höfðað 29. ágúst 2007.
Stefnandi er Benedikt Ólafsson, Hvassaleiti 87, Reykjavík.
Stefndu eru Hafsteinn Ingimundarson og Anna Kristín Þorsteinsdóttir til heimilis að Laugalæk 62, Reykjavík.
Stefnandi gerir þær dómkröfur að stefndu greiði honum in solidum 38.649.533 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. apríl 2007 til greiðsludags, allt að frádregnum 34.649.533 krónum sem stefndu greiddu inn á skuldina þann 19. apríl 2007 og 4.000.000 króna sem greiddar voru inn á skuldina þann 23. apríl 2007. Þá er þess krafist að dráttarvextir leggist við höfuðstól á 12. mánaða fresti í samræmi við ákvæði 12. gr. laga nr. 38/2001, í fyrsta sinn þann 9. apríl 2008. Málskostnaðar er krafist að mati réttarins eða samkvæmt málskostnaðaryfirliti auk virðisaukaskatts.
Allur dómurinn hér
__________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur miðvikudaginn 23. apríl 2008 í máli nr. E-1133/2007:
Fosshótel ehf.
(Reynir Karlsson hrl.)
gegn
Neskjörum ehf.
(Björgvin Þorsteinsson hrl.)
I
Mál þetta var höfðað 14. febrúar 2007 og dómtekið 1. apríl 2008. Stefnandi er Fosshótel ehf., Borgartúni 34, Reykjavík, en stefndi er Neskjör ehf., Laugavegi 140, Reykjavík.
Endanlegar dómkröfur stefnanda eru eftirfarandi:
1. Að viðurkennt verði að kaupsamningur hafi komist á milli stefnanda og stefnda um neðangreinda eignarhluta stefnda í fasteigninni Barónsstíg 2-4, Reykjavík ásamt fylgifé til reksturs fullbúins hótels og að stefndi verði dæmdur til að gefa út afsal til stefnanda fyrir eignarhlutunum, en þeir eru með fastanúmer 200-3450, 200-3451, 223-9937, 223-9938, 223-9939, 223-9940, 223-9941, 223-9942 og 223-9943 í fasteigninni Barónsstíg 2 og fastanúmer 223-9997 í fasteigninni Barónsstíg 4, allt gegn greiðslu kaupverðsins.
Allur dómurinn hér
________________________________________________________________



