D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 5. febrúar 2008 í máli nr. E-4325/2006:
Helga Leifsdóttir
(Marteinn Másson hrl.)
gegn
Ólafi Einarssyni
(Jón Gunnar Zoega hrl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 11. janúar sl. að loknum munnlegum málflutningi, var höfðað með stefnu birtri 23. ágúst 2006 af Helgu Leifsdóttur, Langholtsvegi 89, Reykjavík, á hendur Ólafi Einarssyni, Garðabraut 100, Garði.
Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða henni 435.763 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af 408.673 krónum frá 15. apríl 2006 til stefnubirtingardags, 23. ágúst 2006, en af stefnufjárhæð, 435.763 krónum, frá þeim degi til greiðsludags og að dráttarvextir leggist við höfuðstól kröfunnar á 12 mánaða fresti. Þá er krafist að staðfestur verði lögveðréttur í fasteign stefnda, að Langholtsvegi 89, Reykjavík, þ.e. í báðum eignarhlutum stefnda, fastanúmer 202-0377, þ.e. iðnaður 01-102, og fastanúmer 202-0378, þ.e. íbúð 01-0201, og geymsla, 02-0102, til tryggingar kröfu stefnanda ásamt vöxtum og innheimtukostnaði, þ.m.t. málskostnaði. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda samkvæmt 130. gr. laga nr. 91/1991 að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Af hálfu stefnda er krafist sýknu af öllum kröfum stefnanda og að stefnda verði dæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda að mati réttarins.
___________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 14. febrúar 2008 í máli nr. E-3094/2006:
Sigurður Örn Ágústsson
(Einar Hugi Bjarnason hdl.)
gegn
Sigurði Grétarssyni
Vélalandi ehf.
(Sigurmar Kristján Albertsson hrl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 31. janúar 2008, er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Sigurði Erni Ágústssyni, kt. 000000-0000, Melahvarfi 9, Kópavogi, gegn Sigurði Grétarssyni, kt. 280452, Lækjarseli 5, Reykjavík, og Vélalandi ehf., kt. 000000-0000, Vagnhöfða 21, Reykjavík, með stefnum er birtar voru 22. maí 2006.
Dómkröfur stefnanda eru eftirfarandi:
1. Stefnandi krefst þess aðallega, að stefndu verði dæmdir til að gefa út til stefnanda afsal fyrir tveimur eignarhlutum fasteignarinnar að Vagnhöfða 21, nánar tiltekið tveimur bilum ca 100 m² hvort, annað í norð-austurhluta og hitt í norð-vesturhluta, ásamt öllu því er þeim fylgir og fylgja ber samkvæmt samþykktu kauptilboði aðila dagsettu 9. september 2005, gegn greiðslu kaupverðs kr. 20.600.000, að viðlögðum dagsektum allt að kr. 25.000 pr. dag frá dómsuppkvaðningu eða samkvæmt ákvörðun réttarins.
__________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 14. febrúar 2008 í máli nr. E-4879/2007:
Elín Svava Sigurðardóttir
(Steinunn Guðbjartsdóttir hrl.)
gegn
Grétari Þorgeirssyni og
Sigrúnu Örnu Hafsteinsdóttur
(Skarphéðinn Pétursson hdl.)
Mál þetta höfðaði Elín Svava Sigurðardóttir, Skaftahlíð 42, Reykjavík, með stefnu birtri 20. júní 2007 á hendur Grétari Þorgeirssyni og Sigrúnu Örnu Hafsteinsdóttur, báðum til heimilis að Torfufelli 28, Reykjavík. Málið var dómtekið 18. janúar sl.
Stefnandi krefst þess að kaupsamningur dagsettur 19.02.2007, og afsalsbréf stefnanda til stefndu, vegna fasteignarinnar að Kringlumýrarvegi 26, Grímsnes og Grafningshreppi, fastanúmer eignar 220-8023 01 01 02 01 01, dags. 13.03.2007, verði dæmd ógild og afmáð úr veðmálabókum. Þá krefst stefnandi málskostnaðar.
Stefndu krefjast sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar.
________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur miðvikudaginn 27. febrúar 2008 í máli nr. E-1947/2007:
Ingunn Jóna Gísladóttir
(Páll Arnór Pálsson hrl.)
gegn
JB Byggingafélagi ehf. og
Bjarna Má Bjarnasyni og
Vátryggingafélagi Íslands hf.
til réttargæslu
(Magnús Guðlaugsson hrl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 7. febrúar 2008 var höfðað 19. mars 2007. Stefnandi er Ingunn Jóna Gísladóttir, Bakkastöðum 161, Reykjavík en stefndu eru JB Byggingafélag ehf., Bæjarlind 4, Kópavogi og Bjarni Már Bjarnason, Fífulind 1. Kópavogi. Réttargæslustefndi er Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, Reykjavík.
Dómkröfur stefnanda eru að stefndu verði in solidum dæmdir til að greiða stefnanda 3.057.815 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 1. ágúst 2005 til 18. ágúst 2006 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst hún þess að stefndu verði dæmdir til greiðslu málskostnaðar auk matskostnaðar að fjárhæð 737.040 krónur.
Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda og að stefnandi verði dæmd til að greiða þeim málskostnað.
Engar kröfur eru gerðar á hendur réttargæslustefnda og gerir hann engar kröfur í málinu.
___________________________________________________________________
D Ó M U R:
Ár 2008, föstudaginn 15. febrúar, var í Héraðsdómi Suðurlands í málinu nr. E-333/2007
Vignir Arnarson og
Dagný Magnúsdóttir
gegn
Gunnari Benediktssyni og
Hafdísi Erlu Magnúsdóttur
Mál þetta var þingfest 20. júní 2007 og dómtekið 18. janúar 2008. Stefnendur eru Vignir Arnarson og Dagný Magnúsdóttir, til heimilis að Lyngbergi 22, Þorlákshöfn. Stefndu eru Gunnar Benediktsson og Hafdís Erla Magnúsdóttir, til heimilis að Álftarima 1, Selfossi.
Stefnendur gera þá kröfu að stefndu verði dæmd til að greiða þeim 3.574.169 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 24. júní 2007 til greiðsludags. Þá krefjast stefnendur þess að stefndu verði dæmd til að greiða þeim málskostnað að skaðlausu.
Stefndu krefjast þess aðallega að þau verði sýknuð af kröfum stefnenda en til vara að fjárkröfur stefnenda verði lækkaðar verulega. Í báðum tilvikum er þess krafist að stefnendur verði dæmd til greiðslu málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi og verði við ákvörðun málskostnaðar tekið tillit til virðisaukaskatts.
_______________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Norðurlands vestra 22. febrúar 2008 í máli nr. E-77/2007:
Vagn Þormar Stefánsson
Guðrún Elva Ármannsdóttir
(Gísli Guðni Hall hrl.)
gegn
Lambeyri ehf.
(Stefán Þórarinn Ólafsson hrl.)
Kaupþing banki hf. (Réttargæsla)
(Magnús Pálmi Skúlason hdl.)
I Mál þetta var þingfest 26. júní 2007 en tekið til dóms að loknum munnlegum flutningi 10. janúar 2008. Stefnendur eru Vagn Þormar og Guðrún Ármannsdóttir, bæði til heimilis að Minni-Ökrum, Akrahreppi, Skagafirði. Stefndi er Lambeyri ehf., Lambeyri, sveitarfélaginu Skagafirði.
Dómkröfur
Stefnendur krefjast þess að stefndi verið dæmdur til að greiða þeim 1.201.500 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 28. febrúar 2006 til greiðsludags. Þá krefjast stefnendur málskostnaðar úr hendi stefnda og að við ákvörðun hans verði tekið tillit til skyldu stefnenda til að greiða virðisaukaskatt af þóknun lögmanns síns.
Kröfur eru ekki gerðar á hendur réttargæslustefnda.
Stefndi krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af kröfum stefnenda. Til vara að dómkröfur stefnenda verði lækkaðar. Í báðum tilfellum krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnenda.
Réttargæslustefndi sótti þing við þingfestingu málsins en síðar féll niður þingsókn af hans hálfu og hefur hann ekki gert kröfur í málinu.
_________________________________________________________________



