D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 7. janúar 2008 í máli nr. E-3455/2007:
Húsfélagið Skútahrauni 2
(Dýrleif Kristjánsdóttir hdl.)
gegn
Merlin ehf.
(Valgeir Kristinsson hrl.)
Mál þetta, sem tekið var til dóms 10. desember sl., er höfðað með birtingu stefnu 30. apríl 2007.
Stefnandi er Húsfélagið Skútahrauni 2, Hafnarfirði.
Stefndi er Merlin ehf., Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða sér skuld að fjárhæð 650.442 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 10. desember 2005 til greiðsludags.
Þá krefst stefnandi málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt málskostnaðarreikningi.
Stefndi krefst sýknu af dómkröfum, en til vara lækkunar á dómkröfum. Þá krefst stefndi þess að stefnanda verði gert að greiða honum málskostnað samkvæmt málskostnaðarreikningi.
Stefndi féll frá frávísunakröfu sinni.
Stefna í máli þessu var árituð um aðfararhæfi 29. maí 2007, en beiðni um endurupptöku málsins barst dóminum 4. júlí 2007. Málið var endurupptekið 7. september 2007 og lögð fram greinargerð af hálfu stefnda.
Allur dómurinn hér
___________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 10. janúar 2008 í máli nr. E-4218/2007:
Kaldasel ehf.
(Stefán Bogi Sveinsson hdl.)
gegn
Guðrúnu Ásgeirsdóttur
og Guðmundi Tómassyni
(Jóhannes Ásgeirsson hrl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 14. desember sl., var höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Kaldaseli ehf., Undralandi 4, 108 Reykjavík, á hendur Guðmundi Tómassyni, Kaldárhöfða, 801 Selfoss, og Guðrúnu Ásgeirsdóttur, Kaldárhöfða, 801 Selfoss, með stefnu áritaðri um birtingu 6. júní 2007.
Stefnandi gerir þær dómkröfur að stefndu verði in solidum dæmd til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 975.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt vaxtalögum nr. 38/2001 af 75.000 krónum frá 01.04.2003 til 01.05.2003, af 225.000 krónum frá 01.05.2003 til 01.06.2003, af 375.000 krónum frá 01.06.2003 til 01.07.2003, af 525.000 krónum frá 01.07.2003 til 01.08.2003, af 675.000 krónum frá 01.08.2003 til 01.09.2003, af 825.000 krónum frá 01.09.2003 til 01.10.2003, en af 975.000 krónum frá 01.10.2003 til greiðsludags.
Þá krefst stefnandi málskostnaðar samkvæmt mati dómsins.Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hans hendi að mati dómsins.
Allur dómurinn hér
_____________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 10. janúar 2008 í máli nr. E-2794/2007:
Guðríður Svavarsdóttir
(Grétar Haraldsson hrl.)
gegn
Pétri Guðbjartssyni
(Einar Gautur Steingrímsson hrl.)
Sigurði Erni Sigurðssyni
(Sigurbjörn Magnússon hrl.)
Mál þetta höfðaði Guðríður Svavarsdóttir, Burknabergi 10, Hafnarfirði, með stefnu birtri 10. apríl 2007, á hendur Pétri Guðbjartssyni, Gautavík 11, Reykjavík, og Sigurði Erni Sigurðssyni, Neðstaleiti 28, Reykjavík. Málið var dómtekið 18. desember sl.
Stefnandi krefst þess að stefndu verði dæmdir til að greiða henni óskipt 1.393.000 krónur með dráttarvöxtum frá 1. ágúst 2002 til greiðsludags. Þá krefst hún málskostnaðar að mati dómsins.
Stefndi Pétur Guðbjartsson krefst sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar.
Stefndi Sigurður Örn Sigurðsson krefst sýknu af kröfum stefnanda, til vara sýknu að svo stöddu. Þá krefst hann málskostnaðar.
__________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 14. janúar 2008 í máli nr. E-2904/2007:
Straumás ehf
(Eva Dís Pálmadóttir hdl)
gegn
Fosshótelum ehf
(Reynir Karlsson hrl.)
Mál þetta höfðaði Straumás ehf., Sóltúni 9, Reykjavík, með stefnu birtri 20. apríl 2007 á hendur Fosshótelum ehf., Skipholti 50c, Reykjavík. Málið var dómtekið 17. desember sl.
Stefnandi krefst greiðslu á 4.346.676 krónum með dráttarvöxtum af 1.679.600 krónum frá 5. október 2006 til 5. nóvember sama ár, en af 4.346.676 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar samkvæmt yfirliti að fjárhæð 561.290 krónur.
Stefndi krefst aðallega sýknu af kröfum stefnanda, til vara að kröfur hans verði lækkaðar. Í báðum tilvikum krefst stefndi málskostnaðar samkvæmt yfirliti að fjárhæð 737.416 krónur.
___________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness 10. janúar 2008 í máli nr. E-1666/2005:
Óskar Helgi Jacobsen og
Arnar Helgi Óskarsson
(Guðmundur Óli Björgvinsson hdl.)
gegn
Eignarhaldsfélaginu Á.D. ehf,
Oddi Theódór Guðnasyni og
Gifsmúr ehf
(Valgeir Kristinsson hrl.)
og
Eignarhaldsfélagið Á.D. ehf
(Valgeir Kristinsson hrl.)
gegn
Óskari Helga Jacobsen og
Arnari Helga Óskarssyni
(Guðmundur Óli Björgvinsson hdl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 13. desember síðastliðinn, var höfðað 14. september 2005. Núverandi dómari fékk málið til meðferðar 4. október sl.
Stefnendur og gagnstefndu eru Óskar Helgi Jacobsen, Lónsbraut 6, Hafnarfirði, og Arnar Helgi Óskarsson, Ásbraut 17, Kópavogi.
Stefndu eru Eignarhaldsfélagið Á.D. ehf., Miðhrauni 15, Garðabæ, sem einnig er gagnstefnandi, Oddur Theódór Guðnason og Gifsmúr ehf., báðir síðasttöldu til heimilis að Sveighúsum 9, Reykjavík.
________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness 25. janúar 2008 í máli nr. E-1102/2007:
Ingvi Þ Þorsteinsson
(Sigmundur Hannesson hrl.)
gegn
Einari V. Tryggvasyni
Margréti Tryggvadóttur
(Halldór Helgi Backman hrl.)
I.
Mál þetta, sem dómtekið var 8. janúar sl. að lokinni aðalmeðferð, er höfðað fyrir dómþinginu 8. maí 2007 af Ingva Þ. Þorsteinssyni, Vogatungu 99, Kópavogi, á hendur Margréti Tryggvadóttur, Hvolsvegi 9, Hvolsvelli og með sakaukastefnu 31. maí 2007 á hendur Einari V. Tryggvasyni, Miðdal, Mosfellsbæ.
Dómkröfur stefnanda eru þær aðallega að stefndu verði dæmd in solidum til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 1.500.000 krónur, ásamt dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 38/2001 af 1.500.000 frá 13. mars 2006 til greiðsludags. Þá er krafist vaxtavaxta skv. 12. gr. sömu laga er leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti í fyrsta sinn 13. mars 2007 en síðan árlega eftir þann dag. Til vara krefst stefnandi þess að stefndu verði dæmd til að greiða stefnanda lægri fjárhæð að mati dómsins. Loks krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.
Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda. Þá krefjast stefndu málskostnaðar úr hendi stefnanda að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi auk álags er nemi virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.
_________________________________________________________________
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness 29. janúar 2008 í máli nr. E-1069/2006:
Árbyggð ehf.
(Óskar Sigurðsson hrl.)
gegn
Auðbrekku 4 ehf
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Mál þetta sem dómtekið var 10. janúar 2008 var höfðað með stefnu birtri 9. maí 2006. Núverandi dómari fékk málið til meðferðar 4. október 2007.
Stefnandi er Árbyggð ehf, Klyfjaseli 2, Reykjavík. Stefndi er Auðbrekka 4 ehf, Aragerði 20, Vogum.
Í málinu gerir stefnandi eftirfarandi dómkröfur:
a) Að viðurkennt verði með dómi að samþykkt kauptilboð aðila um fasteignina Auðbrekku 2, Kópavogi, fastanúmer 205-8813, eignarhluti 010201, 398,8 fermetrar ásamt byggingarrétti, sem eigninni fylgir, það er kauptilboð stefnda hinn 28. janúar 2006, sem samþykkt var af stefnanda þann sama dag, sé gildur og skuldbindandi kaupsamningur milli stefnanda og stefnda.
_______________________________________________________________



