Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2008 í máli nr. E-7662/2007:

Magnús Guðjónsson
(Kristinn Bjarnason hrl.)
gegn
Johan Rönning hf.
(Garðar Þ. Garðarsson hrl.)

Mál þetta, sem tekið var til dóms 26. maí sl., er höfðað með stefnu birtri 9. nóvember 2007.
Stefnandi er Magnús Guðjónsson, Gullsmára 5, Kópavogi.
Stefndi er Johan Rönning hf., Sundaborg 15, Reykjavík.

Með bókun sem lögð var fram í þinghaldi 26. maí sl., var dómkröfum breytt og eru endanlegar dómkröfur stefnanda þær að stefnda verði dæmt til að greiða stefnanda 3.134.846 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. maí 2004 til greiðsludags. Stefnandi lýsir því yfir að hann falli frá öðrum kröfuliðum í stefnu en kröfu vegna eftirstöðva kaupsamningsgreiðslu og málskostnað enda hafi stefndi lýst því yfir að hann falli frá innheimtum á eftirstöðvum viðskiptaskuldar stefnanda sem höfð var uppi til skuldajafnaðar.

Þá krefst stefnandi málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda
Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar að skaðlausu.

Allur dómurinn hér
________________________________________________________________

D ó m u r

I Mál þetta, sem dómtekið var miðvikudaginn 14. maí sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Yngva Erni Kristinssyni, kt. 161056-3249, Eskiholti 17, Garðabæ, og Guðrúnu H. Tulinius, kt. 070454-5489, Lækjarseli 9, Reykjavík, með stefnu birtri 20. júní 2007 á hendur Fasteignamarkaðnum ehf., kt. 440973-0359, Óðinsgötu 4, Reykjavík, og til réttargæzlu Sjóvá- Almennum tryggingum hf., kt. 701288-1739, Kringlunni 5, Reykjavík.

Dómkröfur stefnanda eru þær, að viðurkennd verði með dómi skaðabótaskylda stefnda vegna saknæmrar háttsemi starfsmanna hans í söluferli því, sem hófst 24. maí 2004, þegar stefnendur gerðu tilboð um kaup á sumarhúsi við Neðristíg 11, Bláskógabyggð, og lauk þegar í ljós kom, að eigandi eignarinnar hafði selt öðrum eignina 7. september 2004.  Þá er að auki krafizt málskostnaðar úr hendi stefnda, að viðbættum 24,5% virðisaukaskatti, samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.

Dómkröfur stefnda eru þær, að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnenda í málinu.  Þá krefst stefndi þess, að stefnendur verði dæmdir in solidum til þess að greiða stefnda málskostnað að mati dómsins, eða samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.
Af hálfu réttargæzlustefnda eru engar kröfur gerðar, enda engar kröfur gerðar á hendur félaginu.

Allur dómurinn hér
__________________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 11. júní í máli nr. E-6497/2007:

Hjálmar Kristinn Hlöðversson
(Þormóður Skorri Steingrímsson hdl.)
gegn
Kvos hf.
(Sigurður S. Júlíusson hdl.)
Mál þetta, sem dómtekið var 15. maí sl., var höfðað 25. september 2007.

Aðalstefnandi og gagnstefndi er Hjálmar Kristinn Hlöðversson, Funafold 33, Reykjavík.
Aðalstefndi og gagnstefnandi er Kvos hf., Höfðabakka 3-7, Reykjavík.

Dómkröfur í aðalsök

Dómkröfur aðalstefnanda eru þær aðallega að viðurkennt verði með dómi að kaupsamningur hafi ekki stofnast milli stefnda Kvosar hf. og stefnanda, þann 16. febrúar 2006, á grundvelli kauptilboðs Magnúsar Gunnarssonar samkvæmt umboði, í eignarhluta stefnanda í Höfðabakka 1, Reykjavík, með fasteignanúmerinu 221-3238, merkt 01-0102, auk byggingarréttar 177 fermetra verslunar- og skrifstofuhúss.

Til vara að viðurkennt verði með dómi að kaupsamningur sá er stofnaðist milli stefnda Kvosar hf. og stefnanda, þann 16. febrúar 2006, á grundvelli kauptilboðs Magnúsar Gunnarssonar samkvæmt umboði, í eignarhluta stefnanda í Höfðabakka 1, Reykjavík, með fasteignanúmerinu 221-3238, merkt 01-0102, auk byggingarréttar 177 fermetra verslunar og skrifstofuhúss, sé fallinn úr gildi.

Allur dómurinn hér
________________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur, fimmtudaginn 12. júní 2008, í máli nr. E-5177/2007:

Ásdís Ásgeirsdóttir
Guðmundur Helgason
(Skúli Bjarnason hrl.)
gegn
Vilborg Sigríður Árnadóttur
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Björn Theódór Árnasyni
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Kristín Árnadóttur
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Einar Sveinn Árnasyni
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Árni Árnasyni
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)
Vilhjálmur Jens Árnasyni
(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)

Mál þetta, sem dómtekið var að loknum munnlegum málflutningi 27. maí sl., er höfðað með stefnu, áritaðri um birtingu 10. ágúst 2007.
Stefnendur eru Ásdís Ásgeirsdóttir og Guðmundur Helgason, til heimilis að Blátúni 4, Álftanesi.

Stefndu eru Vilborg Sigríður Árnadóttir, Baldursgötu 20, Reykjavík, Björn Theódór Árnason, Smáratúni 1, Álftanesi, Kristín Árnadóttir, Eskihlíð 7, Reykjavík, Einar Sveinn Árnason, Fróðengi 18, Reykjavík, Árni Árnason, Vallarási 4, Reykjavík og Vilhjálmur Jens Árnason, Hellulandi 2, Reykjavík.
Stefnendur krefjast þess að stefndu verði in solidum dæmd til greiðslu 4.124.273 króna, ásamt dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 30. maí 2007 til greiðsludags. Þá krefjast þeir málskostnaðar úr hendi stefndu samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi, eða að mati dómsins.
Stefndu krefjast aðallega sýknu af kröfum stefnenda, en til vara að dómkröfur stefnenda verði lækkaðar verulega. Í báðum tilvikum er krafist málskostnaðar að mati dómsins.

Allur dómurinn hér
_________________________________________________________________