Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 6. maí 2008 í máli nr. E-5092/2007:

Skarfaklettur ehf.
(Jónas Þór Jónasson hdl.)
gegn
Byggðastofnun
(Jóna Björk Helgadóttir hdl.)

Mál þetta, sem dómtekið var að loknum munnlegum málflutningi 22. apríl sl., er höfðað með stefnu, áritaðri um birtingu 26. ágúst2007.
Stefnandi er Skarfaklettur ehf., Hlíðarbraut 15, Blönduósi.

Stefndi er Byggðastofnun, Ártorgi 1, Sauðárkróki.

 Dómkröfur stefnanda eru þær, að viðurkennt verði með dómi að í gildi sé bindandi kaupsamningur milli aðila frá 18. maí 2007 um kaup stefnanda á Hafnarbraut 6, Blönduósi, fastanúmer hjá Fasteignamati ríkisins 222-9251 og 225-9523, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum, og að stefndi verði dæmdur til að gefa út afsal til stefnanda fyrir fasteigninni, gegn greiðslu umsamins kaupverðs, kr. 40.000.000,-, að viðlögðum kr. 10.000,- dagsektum til stefnanda frá dómsuppsögu til afhendingardags.

Þá krefst stefnandi málskostnaðar að skaðlausu, að mati réttarins, og að teknu tilliti til virðisaukaskatts á málflutningsþóknun.
Stefndi krefst sýknu af  öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hans hendi, samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.

Allur dómurinn hér
________________________________________________________________