Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur  4. mars 2008 í máli nr. E-4961/2007:

Þórhallur Víkingsson
Rósa Björk Sigurðardóttir
(Eiríkur Gunnsteinsson hdl.)
gegn
Bryndísi Erlingsdóttur
(Ingi Tryggvason hdl.)

Mál þetta, sem dómtekið var 27 febrúar sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Þórhalli Víkingssyni og Rósu Björk Sigurðardóttur, Brúnalandi 7, Reykjavík, gegn Bryndísi Erlingsdóttur, Dalalandi 2, Reykjavík, með stefnu áritaðri um birtingu 26. júní 2007.

Dómkröfur stefnenda eru þær að stefnda verði dæmd til að greiða stefnendum dráttarvexti samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma um grunn dráttarvaxta og vanefndaálags, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af  19.500.000 kr. frá 15. janúar til 2. febrúar 2006.  Þá er krafist vaxtavaxta samkvæmt 12. gr. sömu laga er leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti, auk málskostnaðar að mati dómsins.

Dómkröfur stefndu eru þær aðallega að hún verði sýknuð af öllum kröfum stefnenda í máli þessu. Til vara krefst stefnda þess að dómkröfur stefnenda verði lækkaðar. Jafnframt er þess krafist að stefnendur verði dæmd til að greiða stefndu málskostnað samkvæmt mati dómsins og við ákvörðun málskostnaðar verði tekið tillit til skyldu stefndu að greiða 24,5% virðisaukaskatt af þjónustu lögmanns.

Allur dómurinn hér
___________________________________________________________________

 D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur, 7. mars 2008 í máli nr. E-1635/2007:

Haraldur Ólafsson
(Jón Ármann Guðjónsson hdl.)
gegn
KGR-Eignarhaldsfélagi ehf.
(Sigurður G. Guðjónsson hrl.)
Ár 2008, föstudaginn 7. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Allani Vagni Magnússyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. E-1635/2007 :

Haraldur Ólafsson
(Jón Ármann Guðjónsson hdl.)
gegn
KGR-Eignarhaldsfélagi ehf.
(Sigurður G. Guðjónsson hrl.)

Mál þetta, sem dómtekið var 5. mars sl., er höfðað með stefnu birtri 28. febrúar 2007.Stefnandi er Haraldur Ólafsson, Bæjargili 109, Garðabæ.Stefndi er KGR-eignarhaldsfélag ehf., Lynghálsi 4, Reykjavík.Stefnandi krefst þess að stefnda verði gert að greiða 36.486.040 krónur með dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 38/2001 frá 10. apríl 2006 til greiðsludags.Þá krefst stefnandi málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda, auk virðisaukaskatts.Stefndi krefst þess að hann verði sýknaður af kröfum stefnanda og að stefnandi verði dæmdur til að greiða málskostnað að mati dómsins.

Allur dómurinn hér
______________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 11. mars 2008 í máli nr. E-6690/2006:
Kolbrún Guðmundsdóttir
(Magnús B. Brynjólfsson hdl.)
gegn
Reynald Jónssyni og
Búafli ehf.
(Ólafur Kjartansson hdl.)
og gagnsök

Mál þetta, sem dómtekið var 27. febrúar sl., er höfðað 31. október 2006. Aðalstefnandi og gagnstefnda er Kolbrún Guðmundsdóttir, Ægisgötu 5, Reykjavík.Aðalstefndu og gagnstefnendur eru Reynald Jónsson, Þrastarlundi 18, Garðabæ og Búafl ehf., sama stað.

Dómkröfur
Aðalsök
Endanlegar dómkröfur stefnanda í aðalsök eru þessar:

Að stefndi Búafl ehf. verði dæmdur til að greiða stefnanda 3.175.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt IV. kafla laga nr. 38/2001 frá 12. febrúar 2007 til greiðsludags.
Að Stefndu Búafl ehf. og Reynald Jónsson verði dæmdir til að greiða stefnanda in solidum 1.825.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt IV. kafla laga nr. 38/2001 frá 12. febrúar 2007 til greiðsludags.
Þá krefst stefnandi þess að Búafli ehf. verði gert skylt að gefa út afsal fyrir íbúð merktri 01-0502 ásamt stæði í bílageymslu 01-B14 að Ægisgötu 5, Reykjavík ásamt öllu sem fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum að viðlögðum dagsektum, 20.000 krónum fyrir hvern dag, frá dómsuppkvaðningardegi til þess dags er það hefur verið gefið út af stefnda.
Krafist er málskostnaðar af stefndu in solidum að skaðlausu samkvæmt ákvörðun dómsins.

Allur dómurinn hér

______________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 13. mars 2008 í máli nr. E-7124/2007:

Elín Einarsdóttir
Hólmfríður G. Stefánsdóttir
(Halldór Helgi Backman hrl.)
gegn
Laufeyju Sigurðardóttur

Guðrúnu Theodóru Sigurðardóttur
Steinunni Ó. Þorsteinsdóttur
(Ragnar Halldór Hall hrl.)
og Skútustaðahreppi

Mál þetta er höfðað af Elínu Einarsdóttur, Kálfaströnd, Skútustaðahreppi, Mývatni og Hólmfríði G. Stefánsdóttur, Kálfaströnd, Skútustaðahreppi, Mývatni, á hendur Laufeyju Sigurðardóttur, Smáragötu 2, Reykjavík, Guðrúnu Theodóru Sigurðardóttur, Danmörku, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, Bandaríkjunum og Skútustaðahreppi, Hlíðarvegi 6, Mývatni, með stefnu áritaðri um birtingu 26. október 2007.

Allur dómurinn hér

_________________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 14. mars 2008 í máli nr. E-2847/2007:

Frón fasteignasala ehf.
(Guðjón Ægir Sigurjónsson hrl.)
gegn
Eignamiðlun ehf.
(Garðar Briem hrl.)

Mál þetta, sem dómtekið var 30. janúar sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af  Frón fasteignasölu ehf., Neshaga 4, Reykjavík, á hendur Eignamiðlun ehf., Síðumúla 21, Reykjavík, með stefnu birtri 12. apríl 2007.

Dómkröfur stefnanda eru þær aðallega að stefnda verði gert að greiða honum 1.299.251 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 8. maí 2003 til greiðsludags. Til vara er þess krafist að stefnda verði gert að greiða stefnanda 699.597 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 8. maí 2003 til greiðsludags. Til þrautavara er þess krafist að stefnda verði gert að greiða stefnanda 299.828 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu  frá 8. maí 2003 til greiðsludags.

Krafist er málskostnaðar að skaðlausu.
Dómkröfur stefnda eru þær að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda í málinu og að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað að skaðlausu að mati dómsins.

Allur dómurinn hér

_________________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 29. febrúar 2008 í máli nr. E-1534/2007:

Joan Evelyn Baker
(Hulda Rós Rúriksdóttir hdl)
gegn
Kolbrúnu Pálínu Hafþórsdóttur
(Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir hdl.)

I.Mál þetta, sem dómtekið var 1. febrúar sl. að lokinni aðalmeðferð og vettvangsgöngu, var höfðað fyrir dómþinginu af Joan Evelyn Baker, Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði, á hendur Kolbrúnu Pálínu Hafþórsdóttur, Hellisgötu 12, Hafnarfirði, með stefnu birtri 20. júní 2007.
Dómkröfur stefnanda eru þær að stefnda verði dæmd til að greiða stefnanda 1.000.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá 20. nóvember 2006 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu.
Dómkröfur stefndu eru aðallega þær að hún verði sýknuð af kröfum stefnanda í málinu en til vara krefst hún þess að dómkröfur stefnanda verði lækkaðar verulega. Í báðum tilvikum krefst stefnda málskostnaðar úr hendi stefnanda eins og málið væri eigi gjafsóknarmál.

Allur dómurinn hér

____________________________________________________________

D Ó M U R

Héraðsdóms Norðurlands eystra, þriðjudaginn 18. mars 2008 í máli nr. E-325/2007:

Hanna ehf.
(Ingvar Þóroddsson hdl.)
gegn
Foxal ehf.
(Ólafur Rúnar Ólafsson hdl.)

Mál þetta, sem dómtekið var að loknum munnlegum málflutningi þann 5. mars sl., var höfðað hér fyrir dómi með stefnu birtri þann 9. júní 2007.
Stefnandi er Hanna ehf., Hlíðarvegi 69, Ólafsfirði, Fjallabyggð.
Stefndi er Foxal ehf., Akurgerði 11C, Akureyri.
Dómkröfur stefnanda eru þær, að viðurkenndur verði kaupréttur hans að fasteigninni Kaupangi við Mýrarveg, 01-0101, Akureyri, fn. 214-9126, og að stefnda verði gert að gefa út afsal til stefnanda fyrir fasteigninni gegn því að stefnandi greiði að fullu áhvílandi skuldabréf útg. þann 30. september 1999 til Landsbanka Íslands hf. nr. 20056, að nafnvirði kr. 12.400.000 með veði í framangreindri fasteign og fasteigninni Akurgerði 11C, Akureyri, fn. 214-4749.

Allur dómurinn hér

________________________________________________________________