Flatarmál fasteignar?
Slík mál koma alltaf öðru hverju upp og er oft skýringana að leita í að reglur um hvernig íbúðir eru mældar upp hafi breyst. Almenna reglan er sú að þó svo flatarmál fasteignar sé minna en kaupandi gerði ráð fyrir telst það ekki galli, nema fasteignin sé verulega minni en seljandi upplýsti fyrir kaup eða háttsemi hans teljist stórfellt gáleysi. Þau rök sem búa að baki þessu eru þau að yfirleitt er fasteign keypt á grundvelli skoðunar og kaupandi hennar metur út frá því hvort hún henti honum að því búnu og hve mikið hann vill greiða fyrir hana. Það er sjaldan sem fermetrastærð skiptir kaupanda meginmáli, nema þar skeiki einhverju verulegu. Stundum getur þó skipt máli, þ.e. þegar atvinnuhúsnæði er keypt til útleigu. Þá getur kaupandi metið tekjur sínar með hliðsjón af stærð. Vegna þessa er það mjög hæpið að þú eigir nokkra skaðabótakröfu nema hugsanlega hafi það komið skýrt fram við kaupin að það væri forsenda að íbúðin væri ákveðið stór.



