Fagleg ábyrgð
Fasteignasalinn ber alla faglega ábyrgð á fasteignasölunni og ber að vera þar með fasta starfsstöð. Vegna þessa má gera kröfu til að fasteignasali sé allra jafnan ávallt á staðnum til að leysa úr málum sem upp kunna að koma. Þú átt ávallt rétt á því að fá að hitta fasteignasalann sé eitthvað sem þú telur að aðstoðarfólk sem vinnur á fasteignasölunni sé ekki að gera rétt. Fasteignaviðskipti eru flókin og mjög margt þar ekki á færi annarra en fasteignasala sem sérfæðinga að sinna. Það er þ.a.l. augljóst að fasteignasalan er ekki að sinna skyldum sínum gagnvart þér ef þú hefur ekki möguleika að hitta fasteignasalann og aðstoðarmennirnir ætla að leysa úr málunum sjálfir. Gerðu þ.a.l. skýlausa kröfu á að fá samband við fasteignasalann enda er hann ábyrgur fyrir öllu því sem gerist á fasteignasölunni og langt í frá hans hagur að hann fái ekki að koma að málum þar sem hann getur þá orðið persónulega ábyrgur vegna þeirra.



