Hússjóður?
Í lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa eru ákvæði um skyldu fasteignasala til þess að vinna ítarlegt söluyfirlit. Eitt af þeim atriðum sem koma þarf fram er yfirlýsing frá húsfélagi um húsgjöld og yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á húsfundi. Hafi fasteignasali vanrækt að kalla eftir yfirlýsingu húsfélags og það ekki verið til staðar þegar kauptilboð var gert getur verið um skaðabótaábyrgð hans að ræða. Á hinn bóginn er ljóst að þærr úrbætur sem ráðist mun verða í leiða væntanlega til verðmætaaukningar eignar þinnar. Engu að síður er mjög bagalegt að hafa ekki slíkar upplýsingar áður en kauptilboð er gert en slíkt getur klárlega haft áhrif á verðtilboð. Eðlilegt er að ræða við fasteignasalann og leita eftir að fasteignasalan beri ábyrgð á hluta þess kostnaðar sem kom í ljós að þú þarft að ynna af hendi.



