Forræði seljanda
Almenna reglan er sú að seljanda er frjálst að velja hvert það boð sem kemur í eign eða hafna öllum. Þannig er það á forræði seljanda hvaða boði hann tekur. Aftur á móti er hlutverk fasteignasalans mjög mikið þegar boð koma í eign og tilkynnir hann seljanda um þau boð sem berast í eignina og fer vandlega yfir kosti og galla þeirra boða sem berast og veitir seljanda faglega ráðgjöf. Fasteignasala er ekki heimilt að greina þeim sem gera tilboð í eign frá fjárhæð þeirra boða sem berast í eign en gertur á hinn bóginn greint frá því hvort önnur tilboð hafi borist. Fasteignasali hefur þagnarskyldu skv. lögum og ber þ.a.l. að vernda trúnað við þá sem bjóða í eign hver þeirra boð séu.



