Lægra söluverð?
Það er ljóst að þarna er komin upp staða sem er mjög óheppileg. Fasteignasala ber skv. lögum að gæta réttmætra hagsmuna kaupanda í hvívetna og m.a að kostir kaupanda séu ekki ósanngjarnir við kaupin. Það er á hinn bóginn alveg ljóst að fasteignasala ber að gera þér grein fyrir megi hann sjá að kaupandi sé að bjóða allt of hátt verð í eign enda hefur löggjafinn sett þær kröfur á hann eins og áður sagði að gæta réttmætra hagsmuna þinna. Hafi hann ekki gert þér grein fyrir því getur hann orðið skaðabótaábyrgur vegna vanrækslu við hagsmunagæslu. Í þessu tilviki er nokkuð erfitt að meta út frá þeim upplýsingum sem gefnar eru hvernig aðstaða var en stundum gerist það að kaupendur bítast um eign og þá fer eign stundum á nokkuð hærra verði en ásett var og fasteignasali hafði metið eignina á. Þá er oft lögmál framboðs og eftirspurnar sem fer að ráða. Hafi fasteignasali á hinn bóginn metið eign á ákveðnu verði sem síðar kemur í ljós að hafi verið algerlega óeðlilegt er hann ekki að gæta skyldna sinna gagnvart kaupanda og skaðabótaábyrgð hans engan veginn útilokuð.



