Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 04.11. 2005

Fasteignasali fékk eign til sölumeðferðar. Tvö tilboð bárust í eignina og var annað frá syni fasteignasalans. Því tilboði í eignina var tekið af seljanda fasteignar. Hinn tilboðsgjafinn taldi sig ekki hafa setið við sama borð og sonur fasteignasalans. Niðurstaða eftirlitsnefndarinnar var sú að fasteignasalinn hefði gerst brotlegur við 14. gr. laga nr. 99/2004 um sjálfstæði og einnig hlutleysisákvæði 15. gr. sömu laga svo og gegn almennum hæfisreglum varðandi milligöngu um sölu fasteignarinnar til sonar síns. Slík sala á fasteign til venslamanna væri til þess fallin að valda tortryggni og því í andstöðu við góða starfshætti við sölu fasteigna. Þá var einnig fundið að því að fasteignasalinn hefði ekki aflað yfirlýsingar húsfélags áður en ritað var undir kauptilboðið og áður en fasteignin var kynnt til sölu en þær upplýsingar hefðu átt að vera í söluyfirliti. Gerðar voru athugasemdir við störf fasteignasalans og þeim tilmælum beint til hans að gæta að framangreindum atriðum í framtíðinni.


Til baka