Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 02.02.2006.
02.02.2006. Í ljós kom eftir að kauptilboð var undirritað að aðrir eigendur fasteignarinnar áttu forkaupsrétt að fasteigninni. Með því að tilgreina ekki kvaðir á eigninni í söluyfirliti og síðar í kauptilboði var það afstaða eftirlitsnefndar að fasteignasalinn hefði brotið gegn d. lið 2. mgr. 11. gr., 1. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 99/2004.



