Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 10.03. 2006

Kvörtun barst eftirlitsnefnd vegna ýmissa þátta sem seljandi fasteignar taldi ámælisverða í störfum fasteignasala. Eftirlitsnefndin gerði athugasemd við að kauptilboð hefði verið undirritað án þess að söluyfirlit hefði legið fyrir en það var undirritað síðar. Var talið að fasteignasalinn hefði vikið frá skýrum fyrirmælum 10. gr. laga nr. 99/2004. Þá var gerð athugasemd við að löglærður starfsmaður fasteignasalans, sem ekki hafði löggildingu sem fasteignasali, hefði einn annast frágang kaupsamnings og setið fund með kaupendum og seljanda sem var talið fara í bága við 1. gr. og 16. gr. laga nr. 99/2004. Gerðar voru athugasemdir við störf fasteignasalans og þeim tilmælum beint til hans að gæta að framangreindum atriðum í framtíðinni.

Til baka