Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 31.03.2006.
Fasteignasali þótti hafa brotið gegn 17. gr. laga nr. 99/2004, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 342/2005, í störfum sínum sem fasteignasali með því að halda eigi fjármunum viðskiptamanna aðgreindum frá eigin fé og með því að varðveita fjármuni viðskiptanna ekki á fjárvörslureikningi í banka og /eða sparisjóði. Jafnframt með því að færa ekki í bókhaldi sérstakan viðskiptareikning, sem sýndi eignir viðskiptamanna á hverjum tíma. Felld var niður fyrri ákvörðun um tímabundna svipting og fasteignasalinn áminntur með vísan til 8. mgr. 22. gr. laga nr. 99/2004. Þá var fasteignasalinn látinn bera kostnað af rannsókn og meðferð málsins, sbr. 8. mgr. 30. gr. laga nr. 99/2004.



