Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04. 2006
Skoðun eftirlitsnefndar leiddi í ljós að fasteignir höfðu verið keyptar af starfsmönnum fasteignasölunnar A eða í gegnum félög sem tengdust starfsmönnum fasteignasölunnar. Talið var að fasteignasalinn bæri ábyrgð á viðskiptum sem fóru fram með þessum hætti og hefði vegna þessa gerst brotlegur gegn 14. og 15. gr. laga nr. 99/2004 og almennum hæfisreglum sem opinber sýslunarmaður. Var fasteignasalinn áminntur með vísan til 22. gr. laganna.



