Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 26.06.2006.
Við sölumeðferð fasteignar var gerð krafa á hendur kaupanda fasteignar vegna kostnaðar við þinglýsingu lóðarleigusamnings. Í söluyfirliti var hvergi getið um kostnað af þinglýsingu lóðarleigusamnings. Var það álit eftirlitsnefndar að fasteignasalinn hefði brotið gegn e. lið 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2004 við sölumeðferð fasteignarinnar með því að tilgreina ekki þennan kostnað kaupanda í söluyfirliti.



