Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 01.08.2006.

Samkvæmt kaupsamningi skyldi hluti af kaupverði fasteignar greitt með bifreið.  Í ljós kom að verðmæti bifreiðarinnar var allt annað en áætlað var í kaupsamningi en raunvirði hennar hafði ekki var kannað sérstaklega.  Þá var hvergi getið um lán áhvílandi á bifreiðinni, hver skyldi aflétta þeim eða hvernig skyldi fara með þau að öðru leyti.  Var það álit eftirlitsnefndar að fasteignasalinn hefði ekki leyst af hendi störf sín eins og góðar viðskiptavenjur bjóða þar sem réttmætra hagsmuna seljanda hafði ekki verið gætt, sbr. 15. gr. laga nr. 99/2004.

Til baka