Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 08.02. 2007
Kvörtun barst eftirlitsnefnd þar sem gerð var athugasemd við frágang fasteignasala á kaupsamningi þar sem kaupsamningsgreiðslur voru tengdar vísitölu byggingarkostnaðar. Taldi kærandi að fasteignasalinn hefði átt að upplýsa kaupendur sérstaklega um þýðingu þessa. Þá var gerð athugasemd við að kaupverðið hefði verið tengt vísitölu desembermánaðar 2005 en kauptilboðið var undirritað í janúarmánuði 2006 en hækkun hafði orðið á vísitölunni milli mánaða. Þá var á því byggt að óeðlileg tengsl hefðu verið milli fasteignasalans og seljanda þar sem fasteignasalinn hafði unnið sem lögmaður fyrir seljanda. Eftirlitsnefndin komst að þeirri niðurstöðu að það færi ekki í bága við ákvæði laga að kaupsamningsgreiðslur væri tengdar við vísitölu að því gefnu að fasteign væri í byggingu. Í umræddu tilviki gerði nefndin hins vegar athugasemd við að í kaupsamningi var ekki kveðið nægjanlega afdráttarlaust á um ástand fasteignarinnar við gerð kaupsamnings og tengsl greiðslna og þeirra verkþátta sem var ólokið. Í ljósi þess að ætlunin var að verðbæta greiðslur vegna ólokinna verkþátta mætti gera kröfu til þess. Þá var talið að fasteignasalanum hefði borið að vekja sérstaka athygli á að verið væri að miða við aðra vístölu en í gildi var þegar kauptilboð var undirritað. Jafnframt var talið að fasteignasalanum hefði borið að upplýsa kvartendur með sannanlegum hætti um tengsl sín og/eða makans við seljanda en þau tengsl gátu vakið efasemdir kaupandans um hlutleysi fasteignasalans. Gerðar voru athugasemdir við störf fasteignasalans og þeim tilmælum beint til hans að gæta að framangreindum atriðum í framtíðinni



