Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 30.05.2007
Við skoðun eftirlitsnefndarinnar kom í ljós að fasteignasali var meirihlutaeigandi tveggja fasteignasala sem reknar voru frá sitt hvorri starfsstöðinni. Eftirlitsnefnd vakti athygli fasteignasalans á ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa, nr. 99/2004 þar sem kveðið er á um að fasteignasala beri sjálfum að starfa á fasteignasölu sinni og vera eigandi að rekstrinum. Jafnframt á 4. mgr. 7. gr. sömu laga þar sem kveðið er á um að fasteignasali geti aðeins haft eina starfsstöð nema um sé að ræða útibú frá aðalstarfsstöð. Skorað var á fasteignasalann að haga störfum sínum til samræmis við ákvæði laga. Þar sem hann varð ekki við áskorun nefndarinnar þótti óhjákvæmilegt að áminna hann vegna brota gegn 7. gr. laga nr. 99/2004 með vísan til sbr. 22. gr. laganna.



