Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 30.05. 2007

Kaupandi fasteignar taldi fasteignasala hafa brotið gegn starfsskyldum sínum með því að draga að þinglýsa afsali fasteignar í u.þ.b. 12 daga frá því að afsalið hafði verið undirritað, sem leitt hafi til tjóns fyrir hann.  Niðurstaða eftirlitsnefndar var sú að dráttur á þinglýsingu afsals hefði verið verulegur og að starfsmenn fasteignasölunnar hafi í störfum sínum brotið gegn 15. gr. laga nr. 99/2004 enda fellst það í góðum viðskiptaháttum að láta þinglýsa skjölum þegar í stað enda hafa viðskiptamenn fasteignasala verulega hagsmuni af því.  Gerðar voru athugasemdir við störf fasteignasalans og þeim tilmælum beint til hans að gæta að framangreindum atriðum í framtíðinni. Eftirlitsefndin tók ekki afstöðu til ætlaðrar bótaskyldu fasteignasalans enda ekki innan lögbundins hlutverks hennar.

Til baka