Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 06.06.2007

Eftirlitsnefndin gerði athugasemd við að á söluyfirlit skorti áritun kaupanda sem fasteignasalanum bar að afla áður en tilboð var gert , sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2004,.  Jafnframt var vakin athygli á að samkvæmt ákvæðinu bæri að tilgreina dagsetningu undirritunar kaupanda.  Þá var gerð athugasemd við að fasteignasalinn hafði aðeins aflað yfirlýsingar frá húsfélagsdeild (stigagangi) en ekki frá húsfélagi alls hússins sem samkvæmt eignaskiptasamningi náði til þriggja stigaganga.  Var það afstaða eftirlitsnefndarinnar að fasteignasalinn hefði með því brotið gegn skyldum sínum lögum samkvæmt og góðum háttum við sölu fasteigna en skylda til að afla yfirlýsingar húsfélags hvílir á fasteignasalanum, sbr. 5. mgr. 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús og 12. gr. laga nr. 99/2004.  Þá var gerð athugasemd við að fasteignasalinn aflaði fyrst yfirlýsingar húsfélags (stigagangs) áður en gagntilboðs var undirritað af hálfu kaupanda þrátt fyrir að skýrlega sé um það kveðið að slík yfirlýsing skuli liggja fyrir áður en fasteign er tekin til sölumeðferðar, sbr. 10. gr. laga nr. 99/2004. Eftirlitsnefnd gerði athugasemdir við störf fasteignasalans að því leyti sem framan greinir og skoraði á hann að gæta að þeim atriðum sem þar greinir í störfum sínum í framtíðinni.

 

 

Til baka