Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 13. ágúst 2007
Kvörtun barst vegna innheimtu fasteignasölu á söluþóknun. Fyrir lá samningur um söluþjónustu þar sem fasteignasalanum A var veitt einkasölumboð á fasteign. Fasteignin var síðar seld fyrir milligöngu fasteignasalans B. Deilt var um hver hefði verið samningur seljanda við fasteignasalann A. Gerður var skriflegur samningur við fasteignasalann A um sölu fasteignarinnar. Með fyrrgreindum samningi uppfyllti fasteignasalan þá skyldu sína lögum samkvæmt að gera skriflegan samning við þann er til hans leitaði. Eftirlitsnefndin tók hins vegar ekki afstöðu til gildi samningsins, þ.m.t. hvort munnlegur samningur hafi komist á milli kvartanda og fasteignasalans um annað.



