Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 13. ágúst 2007
Kvörtun barst þar sem athugasemdir voru gerðar við að í yfirlýsingu húsfélags hefði ekki komið fram fyrirhugaðar framkvæmdir á blokkinni A. Einum og hálfum mánuði eftir afhendingu fasteignarinnar kvaðst kvartandi hafa rætt við íbúa í blokkinni sem sögðu kvartanda frá fyrirhuguðum framkvæmdum sem hefjast áttu sumarið þar á eftir og einnig að fyrir lægi bráðabirgðamat frá verkfræðistofu. Var kvartanda tjáð að öllum íbúum hafi verið kynnt það mat.
Eftirlitsefndin gerði athugasemd við að á söluyfirlit skorti dagsetningu undirritunar bæði kaupanda og seljanda en fasteignasalanum bar að sjá til að söluyfirlit væri undirritað og dagsett áður en tilboð var gert í eignina, sbr. 2. mgr. 10. gr. fyrrgreindra laga.
Fyrir lá að yfirlýsingar húsfélagsins B (stigagangsins) hafði verið aflað áður en fasteignin var tekin til sölumeðferðar eins og fasteignasalanum bar að gera, sbr. 10. gr. laga nr. 99/2004 og 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 939/2004, en skyldan hvíldi á fasteignasalanum að afla þessara gagna Hins vegar lá fyrir eignaskiptasamningur fasteignarinnar frá nóvember 1992. Þar var blokkin öll skilgreind sem eitt hús. Í umfjöllun um hvern matshluta fyrir sig er getið hversu stór hann er að teknu tilliti til heildarstærðar hússins. Afstaða eftirlitsnefndarinnar var sú að fasteignasalanum hafi mátt vera ljóst að húsfélagið næði til allrar blokkarinnar enda um að ræða eitt hús í skilningi laga um fjöleignahús, nr. 26/1994. Áður en fasteignin var tekin til sölumeðferðar var einungis aflað yfirlýsingar þess stigagangs sem íbúðin tilheyrði. Var það afstaða eftirlitsnefndarinnar að fasteignasalinn hafi með því brotið gegn skyldum sínum lögum samkvæmt og góðum háttum við sölu fasteigna enda bar honum að afla yfirlýsingar húsfélagsins en ekki einvörðungu deildar innan húsfélagsins (stigagangsins).
Eftirlitsnefnd gerði athugasemd við störf fasteignasalans og skoraði á hann að bæta ráð sitt án tafar í störfum sínum í framtíðinni.



