Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 25. september 2007
Kvörtun barst þar sem ekki hafi verið getið í söluyfirliti og kauptilboði, að leigutaki í hinni seldu fasteign ætti forkaupsrétt samkvæmt leigusamningi. Jafnframt var kvartað yfir því að kvartandi hafi verið fenginn til að samþykkja kauptilboð í fasteignina án fyrirvara, þrátt fyrir að þá hafi verið ljóst að leigutaki kynni að eiga forkaupsrétt að fasteigninni.
Í 11. gr. laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa kemur fram að fasteignasali skuli gæta þess vandlega að á söluyfirliti komi fram öll grundvallaratriði um eiginleika og ástand eignarinnar. Nánar segir í d. lið 2. mgr. ákvæðisins að tilgreina skuli kvaðir á fasteign og önnur eignahöft. Það var afstaða eftirlitsnefndar að fasteignasalanum hafi ekki mátt vera ljóst þegar söluyfirlit var samið að þriðji maður ætti forkaupsrétt að fasteigninni enda var kvöð um forkaupsrétt ekki að finna í veðbókarvottorði. Þá hafði leigusamningur ekki verið lagður fram. Það hafi hins vegar verið óumdeilt að sölufulltrúi fasteignasölunnar fékk upplýsingar um leigusamninginn og efni hans áður en kvartandi ritaði undir kauptilboðið. Það var afstaða eftirlitsnefndarinnar að fasteignasalanum hefði borið ótvíræð skylda að færa inn í kauptilboðið ákvæði um forkaupsréttinn og fyrirvara vegna hans. Með því að láta það ógert teldist hann hafa brotið gegn 2. mgr. 16. gr. laga nr. 99/2004 sem kveður á um að öll skjalagerð og samningsgerð skuli vönduð og svo úr garði gerð að hagsmunir beggja aðila séu tryggðir og réttarstaða hvors um sig sé glögg.
Fyrir lá að kauptilboð var samið af sölufulltrúa fasteignasölunnar og að kauptilboð var undirritað án þess að fasteignasali kæmi þar nærri. Eftirlitsnefndin gerði alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð enda skýrt brot á 16. gr. laga nr. 99/2004.



