Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 28. desember 2007

Kvörtun barst þar sem greiðslur hefðu dregist á langinn vegna ætlaðra mistaka starfsmanna fasteignasölu. Fyrir lá að kaupsamningur var undirritaður þann 10. janúar 2007.  Var ljóst  þann 15. janúar 2007 að láni Íbúðarlánasjóðs hafði verið þinglýst með athugasemd þar sem fyrir var lán frá Frjálsa fjárfestingarbankanum á fyrsta veðrétti. Það var afstaða eftirlitsnefndarinnar að fasteignasalan hefði ekki brugðist nægjanlega skjótt við þegar lán frá Íbúðarlánasjóði var þinglýst með athugasemd. Fyrir lá að úrbót átti sér fyrst stað þann 2. febrúar 2007, þegar útbúið var skilyrt veðleyfi. Það var afstaða nefndarinnar að fasteignasalinn hefði með vísan til framangreinds ekki leyst af hendi störf sín svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða og ekki gætt réttmætra hagsmuna kvartanda, sbr. 15. gr. laga nr. 99/2004. Eftirlitsnefnd gerði athugasemd við störf fasteignasalans og skoraði á hann að bæta ráð sitt í störfum sínum í framtíðinni.

Til baka