Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
![]()
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í desember 2009 (janúar 1994=100) og lækkar um 2,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 3,8%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 2,8% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 12%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignaskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2010 verður birt 16. febrúar n.k.
Sjá nánar hér.



