Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2010




Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2010 var 157. Heildarvelta nam 4,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 2,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 0,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.

Þegar janúar 2010 er borinn saman við desember 2009 fækkar kaupsamningum um 25,6% og velta minnkar um 54,1%. Í desember 2009 var þinglýst 211 kaupsamningum, velta nam 9,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,8 milljónir króna.

Þegar janúar 2010 er borinn saman við janúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 35,3% og velta eykst um 29,5%. Í janúar 2009 var þinglýst 116 kaupsamningum, velta nam 3,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.



Sjá nánar hér.


Til baka