Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í janúar 2010
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í janúar 2010 var 12. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 273 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,7 milljónir króna.
Á sama tíma var 16 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 297 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 samningi þinglýst á Akranesi. Þar var samningur um eign í sérbýli upp á 25 milljónir króna.
Á sama tíma var 14 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 516 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,9 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.



