Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Velta á markaði




Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar til og með 4. febrúar 2010 var 48. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.232 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 256 milljónir króna og meðalupphæð á samning 64 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 122 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 77 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.



Sjá nánar hér.


Til baka