Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2010
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2010 var 186. Heildarvelta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 31,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.
Þegar febrúar 2010 er borinn saman við janúar 2010 fjölgar kaupsamningum um 18,5% og velta eykst um 27,5%. Í janúar 2010 var þinglýst 157 kaupsamningum, velta nam 4,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,9 milljónir króna.
Þegar febrúar 2010 er borinn saman við febrúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 28,3% og velta eykst um 33,9%. Í febrúar 2009 var þinglýst 145 kaupsamningum, velta nam 4,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 41 í febrúar 2010 eða 23,2% af öllum samningum. Í janúar 2010 voru makaskiptasamningar 35 eða 25,7% af öllum samningum. Í febrúar 2009 voru makaskiptasamningar 39 eða 31,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Sjá nánar hér.



