Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í febrúar 2010
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í febrúar 2010 var 24. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 480 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20 milljónir króna.
Á sama tíma var 8 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 149 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 2 samningum þinglýst á Akranesi. Það voru samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 85 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 11 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 186 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,9 milljónir króna.
Sjá nánar hér.



