Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Útlán 1,6 milljarður í febrúar




Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 1,6 milljarði króna í febrúar. Þar af voru tæplega 1,4 milljarðar króna vegna almennra lána og um 250 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 24% á milli mánaða. Meðalútlán almennra lána voru um 9 milljónir króna í febrúar sem er tæplega 22% hækkun frá fyrra mánuði.

Þann 22. febrúar hélt Íbúðalánasjóður fyrsta útboð íbúðabréfa á árinu 2010. Alls bárust tilboð fyrir 16,112 milljarða að nafnverði og ákveðið var að taka boðum að nafnverði 1,1 milljarður króna í HFF24 á meðalávöxtunarkröfunni 3,81% án þóknunar, 1,55 milljarðar króna í HFF34 á meðalávöxtunarkröfunni 3,81% án þóknunar og 2,3 milljarðar króna í HFF44 á meðalávöxtunarkröfunni 3,80% án þóknunar. Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar var 3,81% og 3,82% með þóknun. Í kjölfar útboðsins lækkuðu útlánavextir sjóðsins um 0,05% og tók vaxtabreytingin gildi þann 23. febrúar. Útlánavextir íbúðalána eftir vaxtabreytinguna eru því 4,50% með uppgreiðsluákvæði og 5,00% án uppgreiðsluákvæðis. Stjórn Íbúðalánasjóðs lagði til við félags- og tryggingamálaráðherra að vaxtaálag sjóðsins yrði hækkað um 0,20% og féllst ráðherra á þá tillögu. Við breytinguna verður vaxtaálag vegna rekstrar 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Heildarvelta íbúðabréfa nam rúmum 56 milljörðum króna í febrúar samanborið við tæpan 81 milljarð í sama mánuði á árinu 2009. Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækkaði nokkuð í febrúar eða um 17 - 24 punkta eftir flokkum.

Þann 1. febrúar barst tilkynning frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar þess efnis að matsfyrirtækið Standard & Poor´s hefði greint frá því þann 29. janúar að það hefði haldið lánshæfismati Íbúðalánasjóðs áfram á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Er það gert í samræmi við lánshæfismat ríkissjóðs Íslands.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu tæpum 8,7 milljörðum króna í febrúar og voru afborganir að mestum hluta vegna íbúðabréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í febrúar námu ríflega 900 milljónum króna.

Sjá nánar hér.


Til baka