Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Óbreyttir vextir í kjölfar útboðs




Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 15.mars 2010 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%  Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi, samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og 14.gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.

 


Til baka