Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2010
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2010 var 243. Heildarvelta nam 7,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,9 milljörðum króna.
Þegar mars 2010 er borinn saman við febrúar 2010 fjölgar kaupsamningum um 30,6% og velta eykst um 22,6%. Í febrúar 2010 var þinglýst 186 kaupsamningum, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 31,1 milljón króna.
Þegar mars 2010 er borinn saman við mars 2009 fjölgar kaupsamningum um 63,1% og velta eykst um 29,8%. Í mars 2009 var þinglýst 149 kaupsamningum, velta nam 5,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 36,7 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 59 í mars 2010 eða 26,7% af öllum samningum. Í febrúar 2010 voru makaskiptasamningar 41 eða 23,2% af öllum samningum. Í mars 2009 voru makaskiptasamningar 56 eða 41,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Nánar hér.



