Ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir 2009
![]()
Ársreikningur Íbúðalánasjóðs 2009 var birtur 15. apríl. Tap af rekstri sjóðsins nam 3.202 millj. kr. Eigið fé hans í árslok var 10.083 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 3,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Stjórn Íbúðalánasjóðs vinnur nú að tillögum um leiðir til að ná langtímamarkmiði um eiginfjárhlutfall en sjóðurinn hefur nú þegar hækkað vaxtaálag á nýjum útlánum. Í árslok námu útlán 756.634 millj. kr. og hækkuðu um 76.228 millj. kr. á árinu. Lántaka sjóðsins nam 784.570 millj. kr. og hækkaði um 71.901 millj. kr. á árinu.
Ársreikningur 2009.



