Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2010


 





Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2010 var 195. Heildarvelta nam 5,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,4 milljörðum króna.

Þegar apríl 2010 er borinn saman við mars 2010 fækkar kaupsamningum um 19,8% og velta minnkar um 24,9%. Í mars 2010 var þinglýst 243 kaupsamningum, velta nam 7,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,2 milljónir króna.

Þegar apríl 2010 er borinn saman við apríl 2009 fjölgar kaupsamningum um 59,8% og velta eykst um 5,9%. Í apríl 2009 var þinglýst 122 kaupsamningum, velta nam 5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 41,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 36 í apríl 2010 eða 19,9% af öllum samningum. Í mars 2010 voru makaskiptasamningar 59 eða 26,7% af öllum samningum. Í apríl 2009 voru makaskiptasamningar 56 eða 48,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Sjá nánar hér.

Til baka