Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í apríl 2010
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í apríl 2010 var 20. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 403 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,1 milljón króna.
Á sama tíma var 7 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af voru 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 146 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.Á sama tíma var 8 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 189 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um eign í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 116 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,5 milljónir króna.
Sjá nánar hér.



