Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
![]()
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 306,7 stig í júní 2010 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,7% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,5% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 1,3%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignaskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Sjá nánar hér.



