Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2010




Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2010 var 281. Heildarvelta nam 7,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 4,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.

Þegar júlí 2010 er borinn saman við júní 2010 fjölgar kaupsamningum um 26,6% og velta eykst um 30,7%. Í júní 2010 var þinglýst 222 kaupsamningum, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,2 milljónir króna.

Þegar júlí 2010 er borinn saman við júlí 2009 fjölgar kaupsamningum um 54,4% og velta eykst um 30,7%. Í júlí 2009 var þinglýst 182 kaupsamningum, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 31,9 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 50 í júlí 2010 eða 18,9% af öllum samningum. Í júní 2010 voru makaskiptasamningar 36 eða 17,4% af öllum samningum. Í júlí 2009 voru makaskiptasamningar 65 eða 36,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Sjá nánar hér.


Til baka