Útlán 2,8 milljarðar í júlí
![]()
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 2,8 milljörðum króna í júlí en þar af voru um 1,8 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010 tæpum 14,8 milljörðum króna samanborið við tæplega 19,9 milljarða yfir sama tímabil ársins 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 9,9 milljónir króna í júlí samanborið við rúmar 8,7 milljónir króna í júní.
Þann 26. júlí gaf lánshæfismatsfyrirtækið Moody's út uppfært lánshæfisálit fyrir Íbúðalánasjóð. Álit Moody's er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.ils.is. Fjórum dögum síðar, eða 30. júlí, breytti Moody's horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs í neikvæðar úr stöðugum og endurspegla horfurnar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands.
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, lækkaði um 1,3% frá júní 2009 til júní 2010. Reyndist lækkunin vera tilkomin vegna 8,1% lækkunar á vísitölu fyrir sérbýli en á sama tímabili hækkaði vísitala fyrir fjölbýli um 0,9%. Nánari upplýsingar eru að finna á vef Þjóðskrár Íslands, www.skra.is.
Heildarvelta íbúðabréfa nam um 34,2 milljörðum króna í júlí samanborið við um 66,5 milljarða í júní. Það sem af er ári hefur heildarvelta íbúðabréfa numið rúmum 374,4 milljörðum króna miðað við rúma 529,9 milljarða á sama tímabili í fyrra.
Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa breyttist lítið í júlí í lengri flokkum bréfanna en hækkaði um 39 punkta í HFF14 í mánuðinum. Frá áramótum hefur ávöxtunarkrafa HFF14 hækkað um 69 punkta en lækkað um 25-35 punkta eftir flokkum í lengri flokkum bréfanna.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu rúmum 352 milljónum króna í júlí en þær voru vegna afborgana hús- og húsnæðisbréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í júlí námu rúmum 2,8 milljörðum króna.



