Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs




Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2010 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins 26. ágúst 2010. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. 

Tap varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 1.680 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 8.402 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. 

Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 2,1% í lok júní 2010. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað vinnuhóp sem ætlað er að fjalla um eiginfjárhlutfall sjóðsins og leggja fyrir stjórn tillögur í þeim efnum. Vinnuhópurinn mun skila niðurstöðum sínum síðar á árinu 2010.  

Virðisrýrnun útlána nam 3.699 millj. kr. í lok júní 2010 og hækkar um 572 millj. kr. á tímabilinu. Vanskil hafa aukist á árinu 2010 og eru 6,3% lántakenda sjóðsins með einn eða fleiri gjalddaga í vanskilum í lok júní 2010 samanborið við 5,3% lántakenda í árslok 2009.  

Frá áramótum hefur sjóðurinn leyst til sín 392 íbúðir til fullnustu krafna. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 739 í lok júní 2010. Íbúðirnar eru færðar á áætluðu markaðsverði í lok júní að frádreginni niðurfærslu að fjárhæð 1.135 millj. kr. vegna óvissu á húsnæðismarkaði. 

Meðal krafna á lánastofnanir í lok júní 2010 eru eignfærðar 2.352 millj. kr. vegna krafna á Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Straum - Burðarás fjárfestingarbanka hf. og eru þær óbreyttar frá árslokum 2009. Í uppgjöri sjóðsins er gengið út frá að hann eigi rétt á skuldajöfnun. Óvissa er um uppgjör krafna og afleiðusamninga ásamt heimild sjóðsins til skuldajöfnunar. Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanleg uppgjör fara fram. 

Árshlutareikning 2010 er að finna á vef Íbúðalánasjóðs, www.ils.is


Til baka