Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, Árborgarsvæðinu, Akranesi og Reykjanesbæ í ágúst 2010




Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í ágúst 2010 var 26. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 498 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu *. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 423 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 samningum þinglýst á Akranesi. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 42 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 14 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 398 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,4 milljónir króna. 

Sjá nánar hér.


Til baka