Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu




Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 332,5 stig í desember 2011 (janúar 1994=100) og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,0%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 3,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Sjá nánar hér.


Til baka