Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Hvað er fasteignasali ?

Þegar um fasteignaviðskipti er að tefla er að jafnaði um gríðarlega fjárhagslega hagsmuni að ræða og fólk yfirleitt að eyða mestu af eigin fé sínu og taka á sig fjárhagslegar skuldbindingar, oft tugi ára fram í tímann. Það segir sig sjálft að miklu skiptir að þeir sem sjá um milligöngu varðandi fasteignaviðskipti hafi til að bera nauðsynlega þekkingu og reynslu. Í lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa sem tóku gildi 1. október 2004 kemur fram að þeim einum sé heimilt að hafa milligöngu við fasteignaviðskipti sem hafa til þess löggildingu dómsmálaráðherra. Til að öðlast slíka löggildingu dómsmálaráðherra þurfa fasteignasalar að hafa starfsreynslu sem starfsmenn fasteignasala og gengið í gegnum strangt nám eða hafa öðlast lögmannsréttindi og er starfsheitið fasteignasali lögverndað starfsheiti.

Það hefur verið Félagi fasteignasala mikið áhyggjuefni að fjöldi vísbendinga hefur borist þar sem aðstoðarfólk á fasteignasölum (sölumenn/sölufulltrúar) kynna sig gagnvart viðskiptavinum sem fasteignasalar eða koma fram í auglýsingum eða fjölmiðlum sem fasteignasalar. Vegna þessa hefur Félag fasteignasala m.a. kært til lögreglu slík tilvik og eins hefur félagið gert alvarlegar athugasemdir og Eftirlitsnefnd félagsins verið gert viðvart, enda í slíkum tilvikum um alvarlegar blekkingar að ræða. Í læknalögum er tekið á því þegar að aðrir en læknar auglýsa sig sem lækna og þeir skv. lögunum kallaðir skottulæknar og er í því ljósi e.t.v. hægt að tala um “skottusala” í framangreindum tilvikum.

Fasteignasalar starfa í samræmi við lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Í þeim lögum er rík ábyrgð lögð á fasteignasala að rækja störf sín af kostgæfni og samviskusemi og vinna þeir drengskaparheit að því áður en þeir hefja störf með sama hætti og t.d. lögmenn. Lögin hafa að geyma margháttaðar skyldur sem lagðar eru á fasteignasalann við þau vandasömu störf sem milliganga við fasteignaviðskipti eru og bera fasteignasalar réttindi og skyldur sem opinberir sýslunarmenn. Öll þau vandasömu úrlausnarefni sem koma upp í fasteignaviðskiptum hafa fasteignasalar út frá menntun sinni og reynslu hæfni til að takast á við, þannig að hagsmunir neytenda séu tryggðir. Eitt af meginmarkmiðum hinna nýju laga um störf fasteignasala eru að vernda hagsmuni neytenda þ.e. að tryggja hagsmuni þeirra og að þessi þjónusta sé veitt af og á ábyrgð fasteignasala. Fasteignasalar hafa persónulegar starfsábyrgðartryggingar, lúta eftirliti Félags fasteignasala og Eftirlitsnefndar félags fasteignasala og hver og einn fasteignasali þarf að fylgja ströngum siðareglum í störfum sínum sem taka m.a. á samskiptum við viðskiptavini.

Það er því brýnt að neytendur geri ríkar kröfur til fagmennsku og vandaðra vinnubragða fasteignasala og að milligangan sé hnökralaus og í traustum höndum fasteignasalans. Það er Félagi fasteignasala mikið umhugsunarefni hve stór hluti þeirra sem sinna milligöngu við fasteignaviðskipti hafa ekki neina menntun til starfsins (þ.e. eru ekki fasteignasalar) og hafa því miður komið upp mörg mál þar sem aðstoðarmenn á fasteignasölum hafa veitt ráðgjöf á hinum ýmsu stigum viðskiptaferlisins sem hafa leitt til tjóns og mikilla vandamála fyrir neytendur. Á sumum fasteignasölum eru 70-90% starfsfólks aðstoðarmenn en einungis um 10-30% fasteignasalar. Félag fasteignasala hefur miklar áhyggjur af þessu. Eins og áður kom fram byggjast fasteignaviðskipti á mjög vandasömu ferli sem hefst á verðmati eigna, sem fasteignsalar hafa öðlast menntun og reynslu til og í framhaldinu margvísleg skjalagerð og ráðgjöf til neytenda í gegnum allt sölu/kaup ferlið. Vitaskuld er ekki hægt að ætlast til þess að þeir sem ekki hafa menntun til starfans þ.e. eru ekki fasteignasalar, hafi þá þekkingu til að bera sem nauðsynleg er í slíkum viðskiptum.

Í lögum er þrátt fyrir hina ríku ábyrgð fasteignasala og allar þær skyldur sem lögin mæla fyrir um og hvíla persónulega á fasteignasalanum, gert ráð fyrir að aðrir starfsmenn geti verið starfandi við fasteignaviðskipti en þar er um að ræða aðstoðarmenn á fasteignasölum. Þeirra störf eiga einkum að felast í að sinna einfaldari störfum t.d. taka á móti viðskiptavinum, svara einföldum fyrirspurnum og aðstoða við gagnaöflun. Slíkir aðstoðarmenn gætu einnig í einhverjum tilvikum, ef þeir hafa til þess nægilega þekkingu og reynslu, skoðað fasteignir og gefið fasteignasala að því loknu upplýsingar sem fasteignasalinn byggir verðmat sitt á. Í einhverjum tilvikum kynni slíkur aðstoðarmaður einnig að geta, undir handleiðslu fasteignasalans aðstoðað við að útbúa skjöl sem fasteignsalinn áritar síðan ef rétt er unnið. Það varðar refsingu að kalla sig fasteigna-, fyrirtækja- eða skipasala án þess að hafa til þess löggildingu dómsmálaráðherra.

Spurðu þinn ráðgjafa á sviði fasteigna- fyrirtækja- eða skipasölu hvort hann hafi réttindi!