Um fasteignakaup.
Það að kaupa fasteign er stór ákvörðun í lífi flestra. Í slíkum viðskiptum er fólk oftast nær að ráðstafa nær öllum fjármunum sínum og skuldbinda stóran hluta tekna sinna langt fram í tímann. Til að fasteignaviðskipti geti orðið sem öruggust og áhættuminnst, er ákveðnum aðilum veitt heimild skv. lögum til að hafa milligöngu um eigendaskipti að fasteignum. Þeir aðilar sem hafa þessa heimild eru löggiltir fasteignasalar en þeir hafa lokið viðamiklu námi og hafa löggildingu frá dómsmálaráðuneytinu til að rækja starfann
Á liðnum árum hafa því miður nokkur alvarleg misferlismál komið upp vegna aðila sem starfað hafa við fasteignasviðskipti. Félag fasteignasala benti vegna þessa á að inn í lög vantaði ákvæði um eftirlit með störfum fasteignasala og heimildir til þess að bregðast við brotum af þeirra hálfu. Óskaði Félag fasteignasala eftir að settar yrðu reglur sem tryggðu betur hagsmuni neytenda, þ.e. þeirra sem eiga viðskipti við fasteignasala en þar er bæði um að ræða seljendur og kaupendur.
Það var Félagi fasteignasala mikið ánægjuefni þegar ný lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa tóku gildi þann 1. október s.l.. Með hinum nýju lögum voru ýmsar breytingar gerðar frá eldri lögum í samræmi við ábendingar félagsins. Fyrir gildistöku hinna nýju laga hafði hver fasteignasali val um það hvort hann óskaði eftir að vera félagsmaður í Félagi fasteignasala. Með hinum nýju lögum var félaginu ætlað viðamikið hlutverk sem talið var að erfitt væri að rækja nema að kveðið yrði á um skylduaðild að félaginu
Á grundvelli þessa var í tengslum við Félag fasteignasala komið á fót eftirlitsnefnd Félags fasteignasala. Kostnað vegna starfa nefndarinnar bera fasteignasalar sjálfir en Félag fasteignasala innheimtir eftirlitsgjald sem nemur kr. 100.000 á ári hjá hverjum fasteignasala. Nefndin hefur eftirlit með því að fasteignasalar starfi í samræmi við lög um sölu fasteigna, í samræmi við siðareglur Félags fasteignasala og góðar venjur í fasteignasölu. Þá hefur nefndin einnig eftirlit með að fullnægjandi ábyrgðatryggingar séu til staðar, að fasteignasalar vinni að allri skjalagerð sjálfir og hagi skjalagerð efnislega í samræmi við ákvæði laga og í samræmi við góðar venjur í fasteignasölu. Þá nær eftirlitið einnig til þess að fasteignasalar gæti hagsmuna bæði kaupanda og seljanda við samningsgerð, en þess ber að geta að sú mikilvæga skylda er lögð á fasteignasala að gæta hagsmuna beggja. Víða erlendis koma lögmenn til aðstoðar kaupendum og seljendum þegar fasteignasali er að vinna að sölu fasteigna, en óneitanlega leiðir sú skipan til mikils viðbótarkostnaðar fyrir kaupendur og seljendur. Sú framkvæmd að gæta hagsmuna beggja aðila leggur auðvitað ríka ábyrgð á hendur fasteignasala og getur fasteignasali orðið skaðabóta- og/eða refsiábyrgur sinni hann ekki þeirri skyldu sinni.
Nýju lögin hafa í för með sér mikla réttarbót fyrir neytendur en þau gera mun ríkari kröfur á fasteignasala en áður og leggja á herðar hans miklar skyldur sem að sjálfsögðu má gera kröfu um þegar um sérfræðivinnu við svo flókið ferli er að ræða. Fasteignasali kemur að viðskiptunum frá upphafi til enda þ.e. frá því eign er sett á sölu og þar til að allar greiðslur hafa verið inntar af hendi samfara útgáfu endanlegrar eignarheimildar. Á þessum tíma, sem allra jafnan nær yfir nokkurra mánuða tímabil, fer fram margvísleg vinna fasteignasalans. Í því ferli reynir mjög á menntun hans og sérþekkingu m.a. við verðmat fasteignar, margháttaðrar ráðleggingar og hagsmunagæslu til beggja aðila, samningsgerðir, fundi með aðilum komi upp vandamál og margt fleira.
Það er Félagi fasteignasala gríðarlega mikilvægt að öll fasteignaviðskipti séu unnin af mikilli þekkingu og trausti og öllum skilyrðum laga og siðareglna félagsins sé fylgt í einu og öllu. Kaupendur og seljendur eiga að geta notið leiðsagnar fasteignasala um allt það sem nauðsynlegt er að hafa í huga varðandi fasteignaviðskiptin þannig að öryggi og hagsmunir beggja séu fullkomlega hafðir að leiðarljósi.



