Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640         

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 28. desember 2007

06.06.2008

Kvörtun barst þar sem greiðslur hefðu dregist á langinn vegna ætlaðra mistaka starfsmanna fasteignasölu. Fyrir lá að kaupsamningur var undirritaður þann 10. janúar 2007. Var ljóst þann 15. janúar 2007 að láni Íbúðarlánasjóðs hafði verið þinglýst með athugasemd þar sem fyrir var lán frá Frjálsa fjárfestingarbankanum á fyrsta veðrétti.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 25. september 2007

06.06.2008

Kvörtun barst þar sem ekki hafi verið getið í söluyfirliti og kauptilboði, að leigutaki í hinni seldu fasteign ætti forkaupsrétt samkvæmt leigusamningi. Jafnframt var kvartað yfir því að kvartandi hafi verið fenginn til að samþykkja kauptilboð í fasteignina án fyrirvara, þrátt fyrir að þá hafi verið ljóst að leigutaki kynni að eiga forkaupsrétt að fasteigninni.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 17. september 2007

06.06.2008

Kvörtun barst þar sem talið var að rangar upplýsingar hefðu verið gefnar um aldur fasteignar, þá hefðu ýmsar aðrar upplýsingar í söluyfirliti verið úreltar. Þá var gerð athugasemd við ætlaðan drátt á þinglýsingu kaupsamningsins.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 13. ágúst 2007

06.06.2008

Kvörtun barst þar sem athugasemdir voru gerðar við að í yfirlýsingu húsfélags hefði ekki komið fram fyrirhugaðar framkvæmdir á blokkinni A. Einum og hálfum mánuði eftir afhendingu fasteignarinnar kvaðst kvartandi hafa rætt við íbúa í blokkinni sem sögðu kvartanda frá fyrirhuguðum framkvæmdum sem hefjast áttu sumarið þar á eftir og einnig að fyrir lægi bráðabirgðamat frá verkfræðistofu. Var kvartanda tjáð að öllum íbúum hafi verið kynnt það mat.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 13. ágúst 2007

06.06.2008

Kvörtun barst vegna innheimtu fasteignasölu á söluþóknun. Fyrir lá samningur um söluþjónustu þar sem fasteignasalanum A var veitt einkasölumboð á fasteign.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 06.06.2007

20.06.2007

Eftirlitsnefndin gerði athugasemd við að á söluyfirlit skorti áritun kaupanda sem fasteignasalanum bar að afla áður en tilboð var gert , sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2004,. Jafnframt var vakin athygli á að samkvæmt ákvæðinu bæri að tilgreina dagsetningu undirritunar kaupanda.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 30.05. 2007

20.06.2007

Kaupandi fasteignar taldi fasteignasala hafa brotið gegn starfsskyldum sínum með því að draga að þinglýsa afsali fasteignar í u.þ.b. 12 daga frá því að afsalið hafði verið undirritað, sem leitt hafi til tjóns fyrir hann.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 30.05.2007

20.06.2007

Við skoðun eftirlitsnefndarinnar kom í ljós að fasteignasali var meirihlutaeigandi tveggja fasteignasala sem reknar voru frá sitt hvorri starfsstöðinni. Eftirlitsnefnd vakti athygli fasteignasalans á ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa, nr. 99/2004 þar sem kveðið er á um að fasteignasala beri sjálfum að starfa á fasteignasölu sinni og vera eigandi að rekstrinum.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 08.02. 2007

20.06.2007

Kvörtun barst eftirlitsnefnd þar sem gerð var athugasemd við frágang fasteignasala á kaupsamningi þar sem kaupsamningsgreiðslur voru tengdar vísitölu byggingarkostnaðar.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 01.08.2006.

20.06.2007

Samkvæmt kaupsamningi skyldi hluti af kaupverði fasteignar greitt með bifreið. Í ljós kom að verðmæti bifreiðarinnar var allt annað en áætlað var í kaupsamningi en raunvirði hennar hafði ekki var kannað sérstaklega.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 31.07.2006.

20.06.2007

Eftirlitsnefnd fór þess á leit við dóms- og kirkjumálaráðuneytið með vísan til 25. gr. laga nr. 99/2004 að fasteignasölu yrði lokað þegar í stað

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 26.06.2006.

20.06.2007

Við sölumeðferð fasteignar var gerð krafa á hendur kaupanda fasteignar vegna kostnaðar við þinglýsingu lóðarleigusamnings.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 22.06.2006.

20.06.2007

Fasteignasali þótti hafa brotið gegn 9. gr. laga nr. 99/2004 í störfum sínum sem fasteignasali með því að vanrækja að gera samning við seljanda fasteignar um söluþjónustu þar sem m.a. kæmi fram verkefni fasteignasalans, hver þóknun hans skyldi vera fyrir starfann eða hvernig hún skyldi ákveðin.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 30.05.2006.

20.06.2007

Eftirlitsnefnd fór þess á leit við dóms- og kirkjumálaráðuneytið með vísan til 25. gr. laga nr. 99/2004 að fyrirtæki, sem ekki hafði löggiltan fasteignasala á starfsstöðinni en auglýsti fasteignir til sölu í dagblaði, yrði lokað þegar í stað.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 11.05.2006.

20.06.2007

Gerðar voru athugasemdir við auglýsingar frá þremur fasteignasölum sem þóttu brjóta gegn 2. mgr. 13. gr. laga nr. 99/2004 og 3. mgr. 11. gr. siðareglna Félags fasteignasala.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04.2006.

20.06.2007

Fasteignasali þótti hafa brotið gegn 14. og 15. gr. laga nr. 99/2004 með því að annast sölu fasteigna til starfsmanna fasteignasölunnar og tengdra félaga. Var fasteignasalinn áminntur með vísan til 22. gr. laganna.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04.2006.

20.06.2007

Fasteignasali þótti hafa vanrækt skyldur sínar skv. 10., 11. og 12. gr. laga nr. 99/2004 með því að hafa ekki fært inn í söluyfirlit og samninga upplýsingar um stærð fasteignar úr eignaskiptasamningi.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04.2006

20.06.2007

Með vísan til 2. mgr. 13. gr. laga nr. 99/2004 gerði eftirlitsefnd athugasemd við auglýsingu sem birst hafði án þess að gerð væri grein fyrir hver væri hinn löggilti fasteignasali við rekstur fasteignasölunnar.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04.2006

20.06.2007

Með vísan til 4. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2004 gerði eftirlitsnefnd athugsemd við að fasteignasali hefði tvær starfsstöðvar sem fasteignasali.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04.2006

20.06.2007

Eftirlitsnefnd fór þess á leit við dóms- og kirkjumálaráðuneytið með vísan til 25. gr. laga nr. 99/2004 að fyrirtæki, sem auglýsti fasteignir til sölu í nafni fasteignasala sem upplýst hafði nefndina að hefði starfsstöð á annarri fasteignasölu, yrði lokað þegar í stað.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04. 2006

20.06.2007

Skoðun eftirlitsnefndar leiddi í ljós að fasteignir höfðu verið keyptar af starfsmönnum fasteignasölunnar A eða í gegnum félög sem tengdust starfsmönnum fasteignasölunnar.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 27.04. 2006

20.06.2007

Skoðun eftirlitsnefndar leiddi í ljós að fasteignir höfðu verið keyptar af starfsmönnum fasteignasölunnar A eða í gegnum félög sem tengdust starfsmönnum fasteignasölunnar.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 26.04.2006

20.06.2007

Eftirlitsnefnd fór þess á leit við dóms- og kirkjumálaráðuneytið með vísan til 25. gr. laga nr. 99/2004 að tvö fyrirtæki, sem auglýstu fasteignir til sölu án þess að fasteignasali væri við reksturinn, yrðu lokað þegar í stað.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 31.03.2006.

20.06.2007

Fasteignasali þótti hafa brotið gegn 17. gr. laga nr. 99/2004, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 342/2005, í störfum sínum sem fasteignasali með því að halda eigi fjármunum viðskiptamanna aðgreindum frá eigin fé og með því að varðveita fjármuni viðskiptanna ekki á fjárvörslureikningi í banka og /eða sparisjóði.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 23.03.2006.

20.06.2007

Með vísan til 3. mgr. 22. gr. laga nr. 99/2004 var fasteignasali sviptur tímabundið löggildingu sökum meðferðar á vörslufé viðskiptamanna.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 10.03. 2006

20.06.2007

Kvörtun barst eftirlitsnefnd vegna ýmissa þátta sem seljandi fasteignar taldi ámælisverða í störfum fasteignasala.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 02.02.2006.

19.06.2007

Í ljós kom eftir að kauptilboð var undirritað að aðrir eigendur fasteignarinnar áttu forkaupsrétt að fasteigninni.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 20.01.2006.

19.06.2007

Með vísan til 4. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2004 gerði eftirlitsnefnd athugsemd við að fasteignasali hefði tvær starfsstöðvar sem fasteignasali.

Niðurstaða Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala þann 04.11. 2005

19.06.2007

Fasteignasali fékk eign til sölumeðferðar. Tvö tilboð bárust í eignina og var annað frá syni fasteignasalans. Því tilboði í eignina var tekið af seljanda fasteignar.