Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Í lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa eru ákvæði þess efnis að Félag fasteignasala skuli setja sér siðareglur og samþykktir.


Siðareglur

Siðareglur Félags fasteignasala skipta gríðarlegu miklu í störfum fasteignasala.
Siðareglurnar eru m.a. mikilvægar leikreglur um samskipti fasteignasala við viðskiptavini og um samskipti milli fasteignasala. Siðareglum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi félagsins.

Stjórn Félags fasteignasala hefur m.a. eftirlit með að siðareglunum sé fylgt og tekur afstöðu til þess hvort fasteignasali hafi gerst brotlegur við reglurnar. Í siðareglunum kemur fram að brjóti fasteignasali gegn siðareglum þá greini stjórn félagsins brotið eftir eðli þeirra a) ámælisvert b) alvarlegt c) mjög alvarlegt. Úrskurðir stjórnarinnar ásamt rökstuðningi eru birtir á heimasíðu félagsins eða í fréttabréfi.

Samþykktir
Í samþykktum Félags fasteignasala er m.a. fjallað um tilgang félagsins, aðalfund félagsins sem haldinn er einu sinni á ári, um stjórn félagsins og nefndir. Núverandi samþykktir félagsins voru samþykktar á aðalfundi 4. nóvember 2004.