Samþykktir fyrir Félag fasteignasala
1. KAFLI Heiti félagsins.
1. gr.
Félagið heitir Félag fasteignasala og er það skammstafað FF. Heimili þess er í Reykjavík.
2. KAFLI Tilgangur.
2. gr.
Tilgangur félagsins er
a) að gæta hagsmuna fasteignsala,
b) að stuðla að samheldni og góðri samvinnu félagsmanna,
c) að standa vörð um sjálfstæði fasteignasala- stéttarinnar,
d) að sinna lögboðnu eftirlits- og agavaldi, m.a. í tengslum við Eftirlitsnefnd FF,
e) að stuðla að framþróun fasteignaviðskipta.
3. KAFLI Deildir félagsaðild.
3. gr.
Allir fasteignasalar eiga aðild að Félagi fasteignasala.
Afsali fasteignasali sér löggildinu sinni eða falli leyfi hans niður af öðrum ástæðum, fellur hann af félagaskrá.
Félagsmenn bera réttindi og skyldur samkvæmt lögum um fasteignasala og öðrum lögum. Um réttindi þeirra og skyldur fer einnig eftir samþykktum félagsins og öðrum reglum þess, svo sem siðareglum.
Sérstök skrá skal haldin um lögaðila sem reka fasteignasölur. Tilkynna skal til stjórnar FF hverjir eigi og reki fasteignasölur.
Fasteignasali sem öðlast hefur löggildingu verður sjálfkrafa aðili að félaginu.
Innan FF er starfrækt sérstök félagsdeild og geta allir fasteignasalar átt aðild að henni. Um félagsdeildina er nánar kveðið á í 9. kafla samþykkta þessara.
4. KAFLI Félagsfundir aðalfundur.
4. gr.
Félagsfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Félagsfundi, aðra en aðalfundi, skal halda, þegar stjórn félagsins þykir við þurfa, samkvæmt fundarályktun, eða þegar minnst 15 félagsmenn krefjast þess skriflega, enda segi þeir til um, hvers vegna þeir æskja fundar. Þá er lögmæt krafa um fundarhald er fram komin, skal fund halda eigi síðar en innan mánaðar.
Til félagsfunda skal stjórnin boða með viku fyrirvara. Í fundarboði skal stuttlega geta þeirra mála, er fyrir eiga að koma á fundinum.
5. gr.
Hverjum félagsfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Atkvæðagreiðsla um málefni á félagsfundi fer eftir því sem fundarstjóri kveður nákvæmar á um. Skrifleg atkvæðagreiðsla skal fara fram ef einhver fundarmanna krefst þess.
6. gr.
Í gerðabók félagsins skal rita stutta skýrslu um það, sem gerist á félagsfundum, einkum allar fundarsamþykktir. Fundargerðir skulu lesnar upp í fundarlok og bornar undir atkvæði. Fundarstjóra er þó heimilt, með samþykki fundarins, að fela fundarritara að ganga síðar frá fundargerðinni. Fundarstjóri og fundarritari undirskrifa síðan fundargerðirnar. Þessi fundarskýrsla skal vera full sönnun þess, er farið hefur fram á fundinum.
Í gerðabók skal einnig skrá skýrslu um stjórnarfundi með sama hætti og undirrita hana allir viðstaddir stjórnarmenn.
7. gr.
Aðalfundur FF skal haldinn fyrir lok febrúarmánaðar ár hvert. Hann er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
Aðalfund skal boða með auglýsingu í a.m.k. einum fjölmiðli og með tilkynningu til hvers einstaks félagsmanns, með minnst hálfs mánaðar fyrirvara, talið frá og með útsendingardegi fundarboðs. Boðun með rafrænum hætti telst fullgild boðun.
8. gr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Ársskýrsla stjórnar félagsins fyrir liðið starfsár.
2. Ársskýrsla eftirlitsnefndar fasteignasala fyrir liðið starfsár.
3. Endurskoðaðir reikningar fyrir hið liðna reikningsár, með athugasemdum endurskoðanda, eru lagðir fram til úrskurðar.
4. Ákvörðun um ávöxtun sjóða félagsins.
5. Stjórnarkosning.
6. Kjör skoðunarmanna reikninga.
7. Kjör laganefndar.
8. Önnur mál, er upp kunna að verða borin.
9. gr.
Hverjum aðalfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafi verið til fundarins boðað og lýsir því síðan, hvort svo sé.
Atkvæðagreiðsla fer eftir því, sem fundarstjóri kveður nákvæmar á um. Þó skal skrifleg atkvæðagreiðsla fara fram, ef einhver fundarmanna krefst þess.
5. KAFLI Stjórn FF
10. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir til vara.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára í senn, tveir ár hvert. Í varastjórn skulu kjörnir tveir menn til eins árs. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins eða varastjórn skulu tilkynna það til stjórnar ekki síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum, kýs sér varaformann, gjaldkera og ritara.
11. gr.
Hlutverk stjórnar er m.a.
a) að veita umsagnir og hafa eftirlit samkvæmt ákvæðum laga um fasteignsala,
b) að tilnefna í ráð og nefndir eftir því sem kveðið er á um í lögum,
c) að koma fram fyrir hönd fasteignsalastéttarinnar,
d) að miðla upplýsingum til fasteignasala og annarra, eftir því sem þörf er á, um það er varðar fasteignasalastéttina og hlutverk og starfsemi stjórnarinnar samkvæmt lögum um fasteignasala,
e) að leysa úr ágreiningsmálum milli félagsmanna innbyrðis og gæta þess að fylgt sé góðum fasteignasöluháttum. Brot á siðareglum Félags fasteignasala getur leitt til þess að úrskurður falli um brot félagsmanns sem birt verður á heimasíðu félagsins eða í fréttabréfi.
f) að vinna að hagsmunamálum félagsmanna.
Stjórnin ræður félaginu framkvæmdastjóra og eftir þörfum annað starfsfólk, sem annast daglegan rekstur þess og framfylgir ákvörðunum stjórnarinnar hverju sinni.
6. KAFLI Nefndir.
12. gr.
Á aðalfundi skal kjósa fimm manna nefnd, laganefnd.
Hlutverk laganefndar er að fylgjast með lögum, lagaframkvæmd og lagafrumvörpum frá Alþingi og gefa stjórn félagsins ábendingar og tillögur til umsagnar um þau.
Nefndin skal starfa að málum að eigin frumkvæði en jafnframt getur félagsstjórnin leitað umsagnar hennar um einstök mál ef henta þykir.
Félagsfundir eða stjórn FF geta skipað nefndir ad hoc þegar fjalla þarf um sérstök málefni, sem ekki falla undir verksvið stjórnar.
7. KAFLI Reikningsár - endurskoðun
13. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
14. gr.
Tveir skoðunarmenn skulu rannsaka reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir sínar um þá.
Tveir skoðunarmenn eru kosnir á aðalfundi.
15. gr.
Fyrir lok janúarmánaðar ár hvert skal gjaldkeri félagsins hafa lokið við samning reikningsins fyrir liðið reikningsár og sent hann skoðunarmönnum, en þeir skulu aftur hafa sent stjórninni reikninginn með athugasemdum sínum innan tveggja vikna.
8. KAFLI Árgjald.
16. gr.
Félagsmenn greiða árgjald sem rennur í félagssjóð og er ætlað að standa straum af rekstri félagsins. Gjalddagi árgjalds er 1. janúar og 1. júlí ár hvert.
Árgjald er ekki endurgreitt þegar félagsmenn hætta.
Árgjaldi verður aðeins breytt á aðalfundi og þurfa 2/3 fundarmanna að greiða atkvæði með breytingunni.
Félagsmenn 70 ára og eldri sem ekki hafa á höndum reglulega starfsemi, geta sótt um niðurfellingu félagsgjalda til stjórnar félagsins.
9. KAFLI Félagsdeild.
17. gr.
Á vegum FF skal rekin sérstök deild, félagsdeild, sem allir fasteignasalar geta átt aðild að. Félagsdeildin hefur aðsetur í húsnæði FF.
Hlutverk félagsdeildar er að annast þau verkefni, sem henni eru falin af aðalfundi deildarinnar eða samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og ekki falla undir lögbundin verkefni FF.
Stjórn FF er jafnframt stjórn félagsdeildar.
18. gr.
Aðalfund félagsdeildar skal halda í tengslum við aðalfund FF.
19. gr.
Fjárhagur félagsdeildar skal aðskilinn frá fjárhag FF.
Um skipulag félagsdeildar, verkefni, fjárhag og annað það, er lýtur að málefnum hennar, skal nánar kveðið á um í reglum um hana.
10. KAFLI Ýmis ákvæði.
20. gr.
Firma félagsins rita formaður þess og tveir stjórnarmanna. Framkvæmdastjóri félagsins hefur prókúruumboð.
21. gr.
Stjórn FF setur reglur um kjör heiðursfélaga og um merki félagsins. Val á heiðursfélaga skal staðfest á félagsfundi.
22. gr.
Samþykktum þessum verður ekki breytt nema á lögmætum aðalfundi, enda greiði 2/3 fundarmanna atkvæði með breytingunni. Tillögur að breytingum þurfa að hafa borist stjórninni svo tímanlega að þeirra sé hægt að geta í fundarboði.
23. gr.
Samþykktir þessar öðlast gildi 4. nóvember 2004.
Breytingar á aðalfundi 25. febrúar 2005



